Gat fannst við botn eldiskvíar

Eldiskvíar. Mynd úr safni.
Eldiskvíar. Mynd úr safni.

Komið hef­ur í ljós gat við botn sil­ung­seldisk­ví­ar fyr­ir­tæk­is­ins Arctic Sea Farm í Dýraf­irði. Þetta seg­ir í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Kem­ur þar fram að með upp­götv­un­inni kunni að hafa fund­ist meg­in­skýr­ing­in á „mögu­legri slysaslepp­ingu regn­bogasil­ungs“ sem fjallað var um síðastliðið haust.

Frétt­ir mbl.is:
Regn­bogasil­ung­ur í ann­arri hverri á
Vilja rann­sókn vegna regn­bogasil­ungs

Tekið er fram í til­kynn­ing­unni að á þeim tíma hafi verið leitað mjög ít­ar­lega skýr­inga, með skoðun á öll­um kví­um þar sem regn­bogasil­ung­ur er ræktaður. Ekk­ert óeðli­legt hafi þá komið í ljós.

„Þess má t.d. geta að kvía­net eru hreinsuð með sér­stakri netaþvotta­vél sem er búin mynda­vél­um og slík hreins­un var fram­kvæmd á þess­ari til­teknu kví í síðasta mánuði og kom þá ekk­ert í ljós sem gaf til kynna að gat væri á net­inu,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

„Mikið áfall fyr­ir starfs­menn og eig­end­ur“

„Gatið sem kom í ljós í dag og er al­veg við botn kví­ar­inn­ar fannst við slátrun upp úr kvínni. Slátrun er ekki lokið en þegar hef­ur verið gripið til aðgerða með lok­un gats­ins en því miður er fyrsta mat starfs­manna það að um­tals­vert magn regn­bogasil­ungs sé sloppið.

Viðbragðsáætl­un við slysaslepp­ingu var virkjuð þegar í stað og var Fiski­stofu gert viðvart, m.a. vegna sam­ráðs um næstu skref.  Auk þess sem um um­tals­vert tjón er að ræða fyr­ir fyr­ir­tækið er hér um að ræða mikið áfall fyr­ir starfs­menn og eig­end­ur sem vinna að upp­bygg­ingu fisk­eld­is á Vest­fjörðum.“

Seg­ir að lok­um að ljóst sé að fram und­an sé ít­ar­leg grein­ing á or­sök­um gats­ins í sam­starfi við Fiski­stofu og MAST, „með það að mark­miði að draga lær­dóm af, m.a. varðandi kvía­út­búnað og fleiri þætti. Útbúnaður kvía er nú þegar í ít­ar­legri skoðun hjá fyr­ir­tæk­inu þar sem m.a. er unnið að inn­leiðingu strang­ari krafna sem sett­ar hafa verið af hálfu eft­ir­litsaðila.“

mbl.is