„Samningur kominn okkar á milli“

Jens Garðar Helgason, formaður SFS.
Jens Garðar Helgason, formaður SFS. mbl.is/Árni Sæberg

„Við höf­um verið hérna í húsi, erum að sjá hvernig kvöld­inu líður aðeins, hvort að sjó­menn hringi til baka,“ seg­ir Jens Garðar Helga­son, formaður SFS, í sam­tali við mbl.is.

Samið hef­ur verið um öll mál í kjara­deil­u sjó­manna og út­gerðar­inn­ar nema um eitt atriði, er varðar mögu­leg­an skatta­af­slátt af fæðis­pen­ing­um sjó­manna. 

„Samn­ing­ur er kom­inn okk­ar á milli en útaf stend­ur þetta atriði,“ út­skýr­ir Jens Garðar. Sjó­menn hafa lýst því yfir að þeir vilji sitja við sama borð og annað launa­fólk sem starfar sam­bæri­leg­ar aðstæður, þ.e. vinn­ur fjarri heim­ili sínu og fjöl­skyldu, og telja sjó­menn að um sé að ræða rétt­læt­is­mál fyr­ir stétt sjó­manna.

„Það er kom­inn samn­ing­ur milli okk­ar og sjó­manna og nú eru sjó­menn að ræða við stjórn­völd,“ út­skýr­ir Jens Garðar. „Við höf­um verið að bíða eft­ir því, hvort að ein­hver niðurstaða hafi komið í það og ég hef ekk­ert talað við ráðherra í dag.“

Bolt­inn sé því hjá hjá sjó­mönn­um sem stend­ur.

„Við erum í sam­bandi og við sjá­um svo til hvort að við för­um heim að sofa á eft­ir eða ekki,“ seg­ir Jens Garðar að lok­um.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina