Kæra frávísun lögreglunnar

Um 100 tilkynningar um regnbogasilung í íslenskum ám bárust í …
Um 100 tilkynningar um regnbogasilung í íslenskum ám bárust í fyrra. mbl.is/Einar Falur Ingólfsson

Lands­sam­band veiðifé­laga (LV) hef­ur kært frá­vís­un Lög­regl­unn­ar á Vest­fjörðum á kæru fé­lags­ins vegna slepp­ing­ar regn­bogasil­ungs á Vest­fjörðum til Rík­is­sak­sókn­ara. Kær­an laut að slepp­ingu á regn­bogasil­ungi sem fund­ist hef­ur víða í ám um norðan- og vest­an­vert landið und­an­farið ár.

Í til­kynn­ingu frá lands­sam­band­inu seg­ir að það telji  að Mat­væla­stofn­un hafi ekki sér­stak­ar vald­heim­ild­ir til að rann­saka málið sem op­in­bert mál. Þá telj­ist það ekki skil­yrði fyr­ir op­in­berri rann­sókn að kæra hafi komið frá Mat­væla­stofn­un. Er ákvörðun Lög­regl­unn­ar á Vest­fjörðum frá 15. fe­brú­ar um frá­vís­un máls­ins kærð.

Þá er at­hygli Rík­is­sak­sókn­ara vak­in á því að starf­semi Mat­væla­stofn­un­ar sæt­ir nú út­tekt í kjöl­far harðrar gagn­rýni á stofn­un­ina um að sinna ekki ábyrgðar­hlut­verki sínu eins og upp­lýst var í fjöl­miðlum. Tel­ur lands­sam­bandið að mál þetta til marks um að stofn­un­in hafi ekki upp­fyllt lög­bundið eft­ir­lits­hlut­verk sitt og því nauðsyn­legt að op­in­ber rann­sókn fari fram á á öll­um þátt­um þess.

mbl.is