Rauðri pöndu bregður (myndskeið)

Svo hissa!
Svo hissa! Skjáskot

Hún sést skríða út úr holu sinni grun­laus um hvað er í vænd­um. Þegar hún svo sér hvað bíður sín bregður henni mikið. Mynd­skeið af rauðri pöndu sem stend­ur frammi fyr­ir steini hef­ur farið sem eld­ur í sinu um net­heima.

Rauðar pönd­ur finn­ast aðallega í Himalaya-fjöll­un­um og í suðvest­ur­hluta Kína. Þær eru mun minni en stóra fjar­skylda frænk­an, risap­and­an. Feld­ur þeirra er rauðbrúnn og skott þeirra langt og loðið. Þær standa oft upp á aft­ur­lapp­irn­ar sem mann­fólk­inu finnst bráðfyndið. 

Rauðar pönd­ur eru í út­rým­ing­ar­hættu. Talið er að inn­an við 10 þúsund villt dýr séu í stofn­in­um. 

mbl.is