Hæstiréttur staðfesti fyrir helgi áframhaldandi gæsluvarðhald yfir karlmanni sem grunaður er um að hafa nauðgað tveimur konum á hóteli á Selfossi. Þá er hann grunaður um kynferðislega áreitni gagnvart þriðju konunni. Manninum er gert að sæta varðhaldi til 8. maí, en lögregla segir sterkan grun um að maðurinn hafi gerst sekur um öll brotin þrjú.
Maðurinn, sem er spænskur, var hnepptur í varðhald í kjölfar handtöku sinnar á vettvangi mánudaginn 13. febrúar. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi allar götur síðan.
Í úrskurði héraðsdóms, sem Hæstiréttur hefur nú staðfest, kemur fram að fallist sé á það með lögreglustjóra að maðurinn sé undir sterkum, rökstuddum grun um að hafa brotið gegn tveimur konum með stuttu millibili undir morgun þann 13. febrúar.
Fram kemur að maðurinn viðurkenni að hafa haft kynmök við konurnar tvær, en að það hafi verið með þeirra samþykki. Segist hann hafa látið af háttsemi sinni um leið og hann hafi orðið þess áskynja að þær hafi ekki viljað þetta. Telur ákæruvaldið framburð hans hins vegar ótrúverðugan og er það byggt á því að kærði var handtekinn á vettvangi síðasta brotsins, framburði brotaþola og framburði vitna.
Að mati dómsins má ætla að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna.
Konurnar sem hann er grunaður um að hafa nauðgað voru sofandi er hann er sagður hafa brotið gegn þeim. Þær voru í miklu uppnámi þegar þær tilkynntu brotin. Sjúkraliði þurfti að sprauta eina þeirra niður.
Fyrri fréttir mbl.is: