Dómstóll í Minnesota í Bandaríkjunum hefur sýknað lögreglumann sem var ákærður fyrir að hafa skotið til bana blökkumanninn Philando Castile í júlí í fyrra. Síðustu andartök Castile náðust á myndbandi sem var birt í beinni útsendingu á Facebook og vakti málið mikla athygli.
Lögreglumaðurinn Jeronimo Yanez, 29 ára, var sýknaður af þremur ákærum: Annars vegar fyrir manndráp af annarri gráðu og hins vegar fyrir að hafa viljandi hleypt af úr hættulegu skotvopni og þar með lagt kærustu Castile í hættu ásamt fjögurra ára dóttur hennar.
Mæðgurnar voru í bílnum þegar Castile var skotinn til bana.
Fjölskylda Castile brást reið við fyrir utan dómshúsið eftir að úrskurðurinn hafði verið kveðinn upp. Þó nokkrir hópar mótmæltu einnig úrskurðinum.
„Ég er brjáluð akkúrat núna,“ sagði Valerie, móðir Castile.
„Kerfið heldur áfram að bregðast svörtu fólki.“
NEW: Philando Castile's mother reacts to not guilty verdict against police officer in the death of her son: "I'm mad as hell right now." pic.twitter.com/rWsq3XnhHt
— ABC News (@ABC) June 16, 2017