Hæggengt færiband í leyfisveitingum

Starfsleyfi fyrir regnbogasilung og þorsk í Ísafjarðardjúpi var ógilt.
Starfsleyfi fyrir regnbogasilung og þorsk í Ísafjarðardjúpi var ógilt. mbl.is/Helgi Bjarnason

„Ég tel að það standi eng­in efni til þess enda vand­séð hvernig hægt er að hægja meira á þeim málsmeðferðar­tíma sem hef­ur verið í kerf­inu að und­an­förnu,“ seg­ir Ein­ar K. Guðfinns­son, formaður Lands­sam­bands fisk­eld­is­stöðva, spurður hvort úr­sk­urður úr­sk­urðar­nefnd­ar um­hverf­is- og auðlinda­mála um ógild­ingu starfs­leyf­is Háa­fells til sjókvía­eld­is í Ísa­fjarðar­djúpi myndi hægja á leyf­is­veit­ing­um.

Frétt mbl.is: Skýra þarf nán­ar hlut­verk ein­stakra stofn­ana

Ein­ar bend­ir á í þessu sam­bandi að eft­ir að nýtt fyr­ir­komu­lag tók gildi með end­ur­skoðuðum lög­um um fisk­eldi í byrj­un árs 2015 hafi aðeins eitt leyfi verið veitt en það hafi verið stækk­un á leyfi sem var áður gefið út. „Ég tel að það eigi að vera hægt að vinna þessi mál af meiri hraða. Ferlið er flókið, það verður að viður­kenna. Mér finnst að þessi úr­sk­urður nefnd­ar­inn­ar sýna okk­ur að öll gagn­rýni á að regl­urn­ar sem við búum um séu ekki nægj­an­lega stíf­ar er ekki á rök­um reist. Því er haldið fram að leyf­in renni á færi­bandi í gegn um stofn­an­ir þegar staðreynd­irn­ar eru aðrar. Það er hæg­gengt færi­band sem eitt leyfi fer um á 1.000 dög­um,“ seg­ir Ein­ar.

Frétt mbl.is: Starfs­leyfi sjókvía­eld­is ógilt

Öll fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in eru með um­sókn­ir um stækk­an­ir og ný svæði í ferli. Flest mál­anna eru í um­hverf­is­mati.

Veg­vís­ir til framtíðar

„Þessi úr­sk­urður fel­ur í sér ábend­ing­ar og gagn­rýni á málsmeðferð. Ekki er verið að víkja að efn­is­atriðum í starfs­leyf­inu sjálfu. Ég tel að fyrst og fremst þjóni þessi úr­sk­urður því hlut­verki að vera veg­vís­ir til framtíðar, um það hvernig haga beri málsmeðferð varðandi út­gáfu starfs­leyfa,“ seg­ir Ein­ar um niður­stöðu úr­sk­urðar­nefnd­ar.

„Ekki er gott að segja til um áhrif­in til lengri tíma. Þó tel ég að með því að skýra leik­regl­ur  ætti út­gáfa leyfa að vera auðveld­ari til framtíðar litið. Þá má geta þess að Um­hverf­is­stofn­un hef­ur þegar brugðist við þess­um at­huga­semd­um í starfi sínu að und­an­förnu,“ seg­ir Ein­ar K. Guðfinns­son.

mbl.is