Háafell hyggst halda sínu striki

Laxeldi í sjókvíum.
Laxeldi í sjókvíum. mbl.is/RAX

Fisk­eld­is­fyr­ir­tækið Háa­fell hyggst halda sínu striki þrátt fyr­ir ógild­ingu starfs­leyf­is fyr­ir fisk­eldi í Ísa­fjarðar­djúpi sem úr­sk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála ógilti í gær. Býst verk­efna­stjóri Háa­fells við því að fá nýtt leyfi á næst­unni. Frá þessu var greint í frétt­um Rúv í kvöld.

Úrsk­urðar­nefnd­in ógilti í gær starfs­leyfi Um­hverf­is­stofn­un­ar varðandi 6.800 tonna sjókvía­eldi regn­bogasil­ungs í Ísa­fjarðar­djúpi sem gefið var út 25. októ­ber á síðasta ári en það er fyr­ir­tækið Háa­fell sem á og rek­ur sjókvía­eldið.

„Ég get ekki séð annað en að þetta sé tíma­móta­úrsk­urður sem þýðir það að þetta eld­isæði sem hef­ur dunið yfir land­inu og færi­banda­af­greiðsla um­sókna sé hér með stopp,“ sagði Óttar Yngva­son, lögmaður kær­enda leyf­is­ins, í sam­tali við Rúv. Önnur leyfi fyr­ir sjókvía­eldi eru nú einnig fyr­ir dóm­stól­um og í kæru­ferli.

Úrsk­urðar­nefnd­in ger­ir at­huga­semd við það að skort hafi gagn­sæi í rök­stuðningi ákvörðunar Um­hverf­is­stofn­un­ar fyr­ir því að veita starfs­leyfið í ljósi álits Skipu­lags­stofn­un­ar á um­hverf­is­mati.

Í sam­tali við Rúv seg­ir Sigrún Ágústs­dótt­ir, sviðsstjóri hjá Um­hverf­is­stofn­un, að verklag hafi breyst frá því að starfs­leyfið var gefið út. Þá seg­ir hún helstu nei­kvæðu þætti um­hverf­is­mats­ins vera þá sem snúi að Mat­væla­stofn­un, sem gef­ur út rekstr­ar­leyfi fyr­ir fisk­eldi í sjó, en hef­ur ekki gefið út rekstr­ar­leyfi fyr­ir þessu eldi. Þá hafi verið form­gall­ar á starfs­leyf­inu sem að sögn Sigrún­ar hef­ur verið bætt úr.

Ekki ligg­ur ljóst fyr­ir hver næstu skref verða fyr­ir leyfið sem um ræðir en Háa­fell hyggst engu að síður halda sínu striki, þrátt fyr­ir úr­sk­urðinn sem var fyr­ir­tæk­inu mik­il von­brigði.

mbl.is