Skýra þarf nánar hlutverk einstakra stofnana

Um­hverf­is­stofn­un tel­ur að úr­sk­urður úr­sk­urðar­nefnd­ar um­hverf­is- og auðlinda­mála um að fella úr gildi starfs­leyfi fyr­ir sjókvía­eldi í inn­an­verðu Ísa­fjarðar­djúpi gefi til­efni til að skýra nán­ar hlut­verk ein­stakra stofn­ana hvað varðar fisk­eldi. Þetta kem­ur fram á vef Um­hverf­is­stofn­un­ar.

Um­hverf­is­stofn­un bend­ir á að þau atriði sem til­greind eru sem helstu nei­kvæðu áhrif fyr­ir­hugaðs fisk­eld­is í inn­an­verðu Ísa­fjarðar­djúpi (auk­in hætta á fisk­sjúk­dóm­um) falla und­ir verksvið Mat­væla­stofn­un­ar. Ekki koma fram ábend­ing­ar um efn­is­lega ann­marka á starfs­leyfi Um­hverf­is­stofn­un­ar, seg­ir í frétt á vef UST.

mbl.is