Vilja íbúafund um fiskeldi

Laxeldi í Berufirði. Búlandstindur gnæfir yfir.
Laxeldi í Berufirði. Búlandstindur gnæfir yfir. mbl.is/Helgi Bjarnason

Sveit­ar­stjórn­ir Fjarðabyggðar og Djúpa­vogs­hrepps hafa þung­ar áhyggj­ur af stöðu framtíðar­upp­bygg­ing­ar fisk­eld­is á Aust­fjörðum, út frá þeim for­send­um sem áhættumat Haf­rann­sókna­stofn­un­ar bygg­ir á.

Þetta kom fram á fundi bæj­ar­ráðs Fjarðabyggðar sem hald­inn var í gær. Seg­ir í fund­ar­gerð ráðsins að frek­ari umræða verði á vett­vangi sveit­ar­fé­lags­ins um fisk­eld­is­mál á næstu miss­er­um. Þá er stefnt að íbúa­fundi með haust­inu til að upp­lýsa um stöðu mála.

Áhyggj­ur sveit­ar­stjórn­anna eru reist­ar á áhættumati sem Haf­rann­sókna­stofn­un gaf út fyrr í mánuðinum, en skýrsla stofn­un­ar­inn­ar var lögð fram á fund­in­um í gær.

Laxa­stofn Breiðdals­ár í mestri hættu

Er meðal ann­ars lagt til í skýrsl­unni að lax­eldi verði ekki aukið í Beruf­irði. Þá er lagst gegn eldi í Stöðvarf­irði vegna ná­lægðar við Breiðdalsá, en nátt­úru­leg­ur laxa­stofn ár­inn­ar á í mestri hættu á að verða fyr­ir áhrif­um af lax­eldi, sam­kvæmt dreif­ing­ar­líkani stofn­un­ar­inn­ar.

Í álykt­un sveit­ar­fé­lag­anna tveggja seg­ir að at­vinnu­upp­bygg­ing á suður­fjörðum Vest­fjarða sé til marks um að flest bendi til þess að fisk­eldi feli í sér eitt helsta sókn­ar­færi jaðarbyggða í at­vinnuþróun og sam­fé­lags­legri upp­bygg­ingu.

Fal­ast eft­ir fundi með ráðherra

„Í ljósi þess fal­ast sveit­ar­stjórn­ir Fjarðabyggðar og Djúpa­vogs­hrepps ein­dregið eft­ir fundi með ráðherra sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðar­mála og for­svars­mönn­um Haf­rann­sókna­stofn­un­ar við fyrsta tæki­færi, svo fara megi yfir þau efn­is­legu rök sem standa til jafn um­svifa­mik­ill­ar skerðing­ar á fisk­eldi á Aust­fjörðum og lagt er til í niður­stöðum áhættumats­ins,“ seg­ir í álykt­un­inni.

Jafn­framt sé lögð áhersla á að stjórn­völd skjóti allri ákv­arðana­töku á frest sem byggi með ein­hverju móti á áhættumat­inu, þar til ljóst sé að for­send­ur mats­ins séu rétt­ar.

mbl.is