John Snorri Sigurjónsson, sem hyggst verða fyrstur Íslendinga upp á topp K2 í Pakistan, leggur af stað úr fjórðu og jafnframt síðustu búðunum upp á topp klukkan 17 að íslenskum tíma í dag. Áætlað er að það taki um tíu klukkustundir að klífa upp á topp.
Hópurinn þurfti að seinka ferð sinni upp á topp um tæpan sólarhring meðal annars vegna þess að hópurinn var örþreyttur þegar hann komst upp í síðustu búðirnar. Sú ganga var vægast sagt krefjandi.
Ferðin úr þriðju búðum tók um 12 klukkustundir en hefði í raun átt að taka um sex stundir. Svartaþoka, drunur frá snjóflóðum, snjóhengjur og sprungur í fjallinu settu mark sitt á þá för, eins og fram kom í viðtali við John Snorra á mbl.is úr fjórðu búðum í gær.