John Snorri Sigurjónsson er kominn aftur í fjórðu búðir af toppi fjallsins K2. John Snorri og sjerpinn Tsering voru fyrstir úr hópnum niður og þar beið þeirra súrefni sem var orðið af skornum skammti uppi á toppi. Á morgun ætlar hann að reyna að komast alla leið niður í grunnbúðir.
Ferðin niður er alls ekki hættulaus en erfiðara er að varast snjóflóð, skriður og grjóthrun. John Snorri er nú að koma sér fyrir í tjaldi þar sem hann mun hvílast til morguns. Forseti Íslands sendi honum kveðju þar sem hann hrósar John Snorra fyrir þrautseigju og viljastyrk. Kveðjuna má sjá hér: