John Snorri Sigurjónsson stóð á toppi Broad Peak, sem yfirleitt gengur undir heitinu K3, klukkan fjögur í nótt. Hann er nú á leið í grunnbúðir en fjallið er þriðja fjallið sem er meira en átta þúsund metrar að hæð sem John Snorri toppar á fjórum mánuðum.
Hjördís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Lífs styrktarfélags, segir að hann hafi náð á topp Broad Peak um fjögurleytið en John Snorri er nú á leið í grunnbúðir að nýju.
Lagt er af stað á K3 úr sömu grunnbúðum og fyrir gönguna á K2 og er hluti hópsins staddur í grunnbúðunum. Á morgun verður síðan lagt af stað til byggða frá grunnbúðunum en komið er með asna til þess að flytja hluta farangursins til byggða. Hjördís segir farangur hópsins mjög mikinn og að áætlað sé að gangan til byggða taki fjóra til fimm daga.
John Snorri er væntanlegur heim til Íslands um miðjan ágúst en eðli málsins samkvæmt er erfitt að gefa nákvæma dagsetningu því veður og vindar skipta miklu máli varðandi ferðalagið frá grunnbúðum til Islamabad, höfuðborgar Pakistan. K2 og K3 eru á landamærum Pakistan og Kína.
Til stendur að fljúga frá Skardu-herflugvellinum í Gilgit-Baltistan héraði til Islamabad en þar sem monsúntímabilið stendur yfir er ekki víst að hægt verði að fljúgja vegna rigninga. Það er ekkert annað í boði en að fara fótgangandi til byggða, segir Hjördís sem hefur fylgst grannt með ferðalagi Johns Snorra undanfarnar vikur en hann safnar áheitum fyrir félagið á ferðalagi sínu. Söfnunin hefur gengið vel en allt söfnunarféð rennur til kvennadeildar Landspítalans.
Gangan á K3 er ekki sögð jafn erfið og gangan á K2, sem er talið hættulegasta fjall í heimi. John Snorri hafði ekki endilega ráðgert að fara á K3 en hluti hópsins sem fór með honum á K2 ákvað að fara og John Snorri taldi sig í nógu góðu standi til að slást í för með þeim.
John Snorri varð 16. maí fyrstur Íslendinga til að ná á topp Lhotse, sem er fjórða hæsta fjall í heimi, 8.516 metrar, og er hluti af Everest-fjallgarðinum í Tíbet. Hann varð 28. júlí fyrstur Íslendinga á topp fjallsins K2 sem er 8.611 metrar. K3 er 8051 metra hátt og tólfta hæsta fjall í heimi.
Áheitasöfnun John Snorra fyrir Líf styrktarfélag er enn í fullum gangi og hægt er að heita á kappann á heimasíðu Lífsspors. Einnig er hægt að hringja í síma 908-1515 og leggja þannig til 1.500 krónur. Allur ágóði rennur beint til félagsins.