Fjallgöngugarpurinn John Snorri Sigurjónsson er kominn heim til Íslands eftir að hafa dvalið í um fjóra mánuði í Himalayafjöllunum þar sem hann kleif K2, Broad Peak og Lhotse, en tindarnir eru allir yfir 8.000 metra háir.
Fjölskylda og vinir John Snorra tóku á móti honum í flugstöð Leifs Eiríkssonar á fjórða tímanum í dag.
Enginn annar í heiminum nema John Snorri og sherpinn Tsering hafa farið á topp K2 og toppinn á Broad Peak á sjö dögum. Enginn hefur heldur áður farið frá grunnbúðum upp á Broad Peak og aftur niður á tveimur dögum.