„Lifandi plaggið“ andvana fætt

Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks. mbl.is/Eggert

„Ég mun ekki samþykkja að lög­festa „lif­andi plagg“ ef það er ekk­ert meira en and­vana fætt.“

Þetta seg­ir Teit­ur Björn Ein­ars­son, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins í Norðvest­ur­kjör­dæmi, um þær til­lög­ur starfs­hóps um stefnu­mót­un í fisk­eldi sem kynnt­ar voru í gær. 

Skrif­ar hann um málið á Face­book-síðu sinni. Seg­ir hann þar að í til­lög­un­um sé eitt og annað gagn­legt og muni nýt­ast í frek­ari umræðu. Annað sé þó óá­sætt­an­legt og ófull­nægj­andi.

„Það hef­ur legið fyr­ir nú um tíma að til­lög­ur sem fjalla ekk­ert um eða greina ekki sam­fé­lags­leg áhrif og hags­muni fólks í þeim byggðarlög­um sem mest eiga und­ir hafa eðli máls sam­kvæmt mjög tak­markað gildi ein­ar og sér sem ein­hver grund­völl­ur að breiðri sam­stöðu,“ seg­ir Teit­ur Björn.

Áður hef­ur verið gagn­rýnt að í áhættumati Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, sem starfs­hóp­ur­inn legg­ur til að byggt verði á, sé ekki tekið til­lit til hags­muna íbúa á svæðum þar sem fisk­eldi er stundað eða það fyr­ir­hugað.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir sjáv­ar­út­vegs­ráðherra sagði í sam­tali við mbl.is í gær að Haf­rann­sókna­stofn­un und­ir­strikaði það að áhættumatið „er lif­andi plagg og get­ur tekið breyt­ing­um, bæði í þá veru að auka fisk­eldi og minnka það.“

Teit­ur Björn seg­ist líta svo á að næsta skref sé að dýpka umræðuna og breikka hana, meðal ann­ars með sam­töl­um við íbúa, sveit­ar­stjórn­ar­menn og vís­inda­sam­fé­lagið.

„Þá á eft­ir að fá botn í nokk­ur veiga­mik­il atriði áður en lengra verður haldið. Til að mynda hversu hratt full­vinna á áhættumatið fyr­ir Ísa­fjarðar­djúp þar sem tekið er mið af þeirri þekk­ingu og tækni sem til staðar er til að koma í veg fyr­ir hugs­an­lega erfðablönd­un,“ seg­ir Teit­ur Björn.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina