Segja sig úr Landssambandi fiskeldisstöðva

Ísafjarðardjúp.
Ísafjarðardjúp. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Háa­fell, fisk­eld­is­fyr­ir­tæki í eigu Hraðfrysti­húss­ins - Gunn­var­ar hf. í Hnífs­dal (HG), hef­ur sagt sig úr Lands­sam­bandi fisk­eld­is­stöðva (LF) en fyr­ir­tækið hef­ur verið fé­lagi í sam­tök­un­um í rúm 15 ár og full­trúi þess átt sæti í stjórn sam­tak­anna und­an­far­in ár. Þetta kem­ur fram á vef HG:

„Um nokk­urt skeið hef­ur fram­ganga LF fjar­lægst þá stefnu og sýn sem Háa­fell vill byggja á í upp­bygg­ingu fisk­eld­is á Íslandi. Í síðustu viku skrifuðu full­trú­ar LF at­huga­semda­laust und­ir stefnu­mót­un­ar­skýrslu í fisk­eldi þar sem m.a. er lagt til að áform um upp­bygg­ingu lax­eld­is í Ísa­fjarðar­djúpi verði sleg­in út af borðinu og þar með sex ára rétt­mæt­ar vænt­ing­ar Háa­fells, sam­fé­lags­ins við Djúp og íbú­anna að engu hafðar.

Háa­fell hef­ur lagt sig sér­stak­lega fram um að vanda til verka í um­sókn­ar­ferl­inu, upp­bygg­ingaráformin eru var­fær­in og hugsuð yfir lengri tíma, búið er að fara í gegn­um ít­ar­legt sam­ráðsferli með hags­munaaðilum og íbú­um og leggja til og út­færa mót­vægisaðgerðir til þess að lág­marka um­hverf­isáhrif. Ekki er tekið til­lit til of­an­tal­inna þátta í skýrsl­unni held­ur virðist skýrsl­an frem­ur vera ein­hvers kon­ar sam­komu­lag milli stærstu eld­is­fyr­ir­tækj­anna og veiðirétt­ar­hafa. Háa­fell mun áfram beita sér fyr­ir því að byggja var­sam­lega upp lax­eldi í Ísa­fjarðar­djúpi sam­kvæmt ströng­um kröf­um, í sátt við um­hverfið og til hags­bóta fyr­ir sam­fé­lagið.

HG og síðar Háa­fell hafa stundað far­sælt eldi í Ísa­fjarðar­djúpi síðan árið 2002 og verið með um­sókn um 7.000 tonna lax­eld­is­leyfi í  stjórn­kerf­inu síðan 2011. Háa­fell er eina eld­is­fyr­ir­tækið sem er al­ís­lenskt og í eigu heima­manna sem vinn­ur að upp­bygg­ingu lax­eld­is í sjókví­um við Ísland,“ seg­ir í frétt á vef HG.

Kristján G. Jóakims­son, verk­efna­stjóri Háa­fells, seg­ir enn frem­ur á vef HG: „Það er aug­ljóst að með þessu er ekk­ert til­lit tekið til þeirr­ar vönduðu og miklu vinnu sem við höf­um lagt í á und­an­förn­um árum. Því síður eru hags­mun­ir íbúa á norðan­verðum Vest­fjörðum nokk­urs metn­ir. Og það er í raun sorg­legt að fólk sem vill bjarga sér sjálft sé svipt þeim mögu­leika, svo aðrir geti skarað eld að eig­in köku.“

Til­kynn­ing­in í heild

mbl.is