Skýr merki um erfðablöndun laxa

Skýr merki eru sögð um erfðablöndun lax í Sunndalsá í …
Skýr merki eru sögð um erfðablöndun lax í Sunndalsá í Trostansfirði. Kort/map.is

Vís­bend­ing­ar um erfðablönd­un má greina í sex vatns­föll­um í ná­grenni eld­is­svæða á Vest­fjörðum. Þar af eru skýr merki um erfðablönd­un í Botnsá í Tálknafirði og í Sunn­dalsá í Trost­ans­firði, sem er einn af inn­fjörðum Arn­ar­fjarðar.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Haf­rann­sókna­stofn­un, sem lokið hef­ur við rann­sókn á erfðablönd­un eld­islax og nátt­úru­legs lax í laxa­stofn­um á Vest­fjörðum. Vísað var í rann­sókn­ina í áhættumati Haf­rann­sókna­stofn­un­ar vegna mögu­legr­ar erfðablönd­un­ar frá lax­eldi en þá var um óbirt gögn að ræða.

Í til­kynn­ingu stofn­un­ar­inn­ar kem­ur fram að í rann­sókn­inni hafi erfðablönd­un verið könnuð meðal nátt­úru­legra laxa í ná­grenni eld­is­svæða á Vest­fjörðum. Einnig hafi skyld­leiki stofna svæðis­ins við aðra stofna á Íslandi verið kannaður með sam­an­b­urði við 26 laxa­stofna.

Leyfi hafa verið veitt fyrir 40.000 tonna eldi hér á …
Leyfi hafa verið veitt fyr­ir 40.000 tonna eldi hér á landi. mbl.is/​Helgi Bjarna­son

Erfðablönd­un en eng­ar slepp­ing­ar til­kynnt­ar

„Sam­tals voru 701 seiði úr 16 vatns­föll­um á svæðinu frá Súg­andafirði til Rauðasands erfðagreind með 15 ör­tungl­um. Vís­bend­ing­ar um erfðablönd­un mátti greina í sex vatns­föll­um og þar af voru skýr merki í Botnsá í Tálknafirði og í Sunn­dalsá í Trost­ans­firði sem er einn af inn­fjörðum Arn­ar­fjarðar,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Fram kem­ur að ald­urs­grein­ing á blend­ing­um hafi tengt erfðablönd­un­ina við þekkt­ar göng­ur kynþroska eld­islaxa í vatns­föll á ár­un­um 2014 og 2015.

At­hygli vek­ur þá að gögn­in benda til að erfðablönd­un hafi orðið árið 2012 en líkt og árið 2015 hafi eng­ar slepp­ing­ar laxa úr sjókví­um verið til­kynnt­ar þá.

Sjókvíaeldi á laxi af norskum uppruna hefur verið stundað með …
Sjókvía­eldi á laxi af norsk­um upp­runa hef­ur verið stundað með hlé­um í nokk­urn tíma. mbl.is/​Helgi Bjarna­son

Vest­firsk­ir lax­ar sér­stak­ur erfðahóp­ur

Seg­ir enn frem­ur að grein­ing á skyld­leika vest­firsku laxa­stofn­anna við aðra laxa­stofna á Íslandi bendi til að þeir myndi sér­stak­an erfðahóp og séu því lík­lega mik­il­væg­ir m.t.t. líf­fræðilegs fjöl­breyti­leika.

„Erfðablönd­un við eld­islax hef­ur breytt erfðasam­setn­ingu margra villtra laxa­stofna á nátt­úru­legu út­breiðslu­svæði lax í heim­in­um og valdið breyt­ing­um á þátt­um sem snúa að líf­sögu þeirra og hæfni. Í Nor­egi er talið að erfðablönd­un sé helsta ógn­in við villta laxa­stofna þar í landi.“

Að lok­um seg­ir að á Íslandi hafi sjókvía­eldi á laxi af norsk­um upp­runa verið stundað með hlé­um í nokk­urn tíma. Fram­leiðslan hafi þá jafn­an verið frem­ur lít­il eða nokk­ur þúsund tonn á ári.

„Leyfi hafa nú verið veitt fyr­ir 40.000 tonna eldi og til viðbót­ar bíða mats á um­hverf­isáhrif­um áætlan­ir um tugþúsunda tonna fram­leiðslu. Aðeins má stunda lax­eldi í sjókví­um á ákveðnum svæðum við landið. Á þeim svæðum eru al­mennt tak­markaðar upp­lýs­ing­ar um stofna laxa og lax­fiska og mögu­leg áhrif eld­is­ins á villta laxa­stofna hafa til þessa ekki verið rann­sökuð.“

mbl.is