Tekjur laxeldis „þúsund sinnum meiri“

Laxeldi á Vestfjörðum. Mynd úr safni.
Laxeldi á Vestfjörðum. Mynd úr safni. mbl.is/Helgi Bjarnason

„Ætla má að ár­leg­ar tekj­ur af laxveiði þriggja áa í Ísa­fjarðar­djúpi séu 25 millj­ón­ir króna. Útflutn­ings­tekj­ur af 30.000 tonna lax­eldi í Djúp­inu eru tald­ar vera um 25 millj­arðar króna. Þær eru þúsund sinn­um meiri.“ Þetta seg­ir Krist­inn H. Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi alþing­ismaður fyr­ir Norðvest­ur­kjör­dæmi, í pistli sem birt­ist á 200 míl­um í dag.

Seg­ir hann enn frem­ur að það sé fjarri lagi að nátt­úru­leg­ur laxa­stofn um­ræddra áa sé nýtt­ur á sjálf­bær­an hátt.

„Hafa ber í huga að sjálf­bær nýt­ing þýðir að nátt­úr­an sjálf er lát­in um það að ráða hver stofn­stærð er á hverj­um tíma og að ekki sé tekið meira úr stofn­in­um en svo að stofn­inn haldi stærð sín­um og styrk,“ skrif­ar Krist­inn.

„Það er öðru nær í þess­um þrem­ur til­vik­um. Í árn­ar er sleppt seiðum til þess að auka stærð stofns­ins og gera hann verðmæt­ari sem veiðistofn. Ef slepp­inga nyti ekki við væri veiðin snöggt­um minni. Þetta er ekki sjálf­bær nýt­ing held­ur mann­legt inn­grip í gang­virki nátt­úr­unn­ar. Þetta inn­grip er ekki af um­hyggju fyr­ir nátt­úr­unni held­ur af efna­hags­leg­um hvöt­um.“

Pist­ill Krist­ins í heild sinni

mbl.is

Bloggað um frétt­ina