Óskar eftir viðbrögðum fleiri aðila

Sigurður Ingi Jóhannson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhannson, formaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Golli

Sig­urður Ingi Jó­hanns­son, formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hef­ur óskað eft­ir því við Pál Magnús­son, formann at­vinnu­vega­nefnd­ar, að boðaðir verði fleiri aðilar til að bregðast við skýrslu ráðherra um stefnu­mót­un í fisk­eldi.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Sig­urði Inga. 

„Ég tel nauðsyn­legt að víðtæk­ari um­fjöll­un eigi sér stað um skýrsl­una, for­send­ur henn­ar og niður­stöður,“ seg­ir Sig­urður Ingi sem hef­ur óskað eft­ir að full­trú­ar sveit­ar­stjórn­ar Breiðdals­hrepps, Djúpa­vogs­hrepps, Bol­ung­ar­vík­ur­kaupstaðar, Súðavík­ur­hrepps og Ísa­fjarðarbæj­ar verði boðaðir á fund at­vinnu­vega­nefnd­ar.

Jafn­framt ósk­ar hann eft­ir að full­trú­ar Lands­sam­bands fisk­eld­is­stöðva, Háa­fells ehf. og Laxa ehf. verði boðaðir.

Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins seg­ir enn frem­ur mik­il­vægt að í fram­haldi af þess­um fund­um komi fleiri sjón­ar­mið fyr­ir nefnd­ina, m.a. um vís­inda­leg­an grunn áhættumats, líf­fræðileg­ar sem markaðsleg­ar for­send­ur fyr­ir geldlaxi og um fleiri þætti sem nauðsyn­legt sé að skoða.

mbl.is