Gagnrýna hugmyndir um frestun laxeldis

Laxeldi hefur verið byggt upp í nokkrum fjörðum Vestfjarða.
Laxeldi hefur verið byggt upp í nokkrum fjörðum Vestfjarða. mbl.is/Helgi Bjarnason

Stjórn Verka­lýðsfé­lags Vest­f­irðinga krefst þess að stjórn­völd gefi íbú­um Vest­fjarða skýr svör og höggvi nú þegar á þá hnúta sem standa at­vinnu­upp­bygg­ingu í fjórðungn­um fyr­ir þrif­um. Þetta kem­ur fram í álykt­un sem fé­lagið hef­ur sent frá sér.

Seg­ir þar að stjórn­in gagn­rýni harðlega hug­mynd­ir um að lax­eldi við Ísa­fjarðar­djúp verði slegið á frest „eða lax­eldi sett­ir því­lík­ir afar­kost­ir að ekki verður unnt að hefja raun­hæfa upp­bygg­ingu lax­eld­is við Djúp.“

Full­yrt er að lífs­nauðsyn­legt sé að skjóta ör­ugg­ari stoðum und­ir byggð á Vest­fjörðum og tryggja at­vinnu­ör­yggi þannig að hægt sé að styrkja grunnþætti at­vinnu­lífs í fjórðungn­um. Meg­in áhersla at­vinnupp­bygg­ing­ar snúi að sjáv­ar­tengdri at­vinnu­starf­semi auk nýt­ingu allra þeirra auðlinda sem Vest­f­irðir hafi upp á að bjóða. Stjórn fé­lags­ins seg­ist þá benda á þann mikla viðsnún­ing í at­vinnu­lífi og upp­bygg­ingu sem orðið hafi á sunn­an­verðum Vest­fjörðum með til­komu nýrra at­vinnu­tæki­færa.

„Í dag er óhóf­leg­ur flutn­ings­kostnaður raf­magns ásamt erfiðum rekstr­ar­skil­yrðum vegna ótryggr­ar raf­orku og skorts á boðleg­um heils­árs­sam­göng­um inn­an Vest­fjarða mik­il ógn við at­vinnu­ör­yggi í fjórðungn­um. Alþingi á að boða laga­setn­ingu á Teigs­skógs­hnút­inn sem fram­hald við Dýra­fjarðargöng og end­ur­bæt­ur Dynj­and­is­heiðar,“ seg­ir í álykt­un­inni.

Bú­setu­skil­yrði kom­ist inn í 21. öld­ina

„Nauðsyn­legt er að stór­bæta af­hend­ingarör­yggi raf­orku í fjórðungn­um með því að ráðast strax í bygg­ingu Hvalár­virkj­un­ar. Slíkt verði í sátt við nátt­úru og sam­fé­lag þó þannig að íbú­ar svæðis­ins fái að njóta vaf­ans.

Stjórn Verka­lýðsfé­lags Vest­f­irðinga minn­ir á að lands­byggðin ráðstaf­ar um 30-80% af sín­um tekj­um á höfuðborg­ar­svæðinu en höfuðborg­ar­svæðið ein­göngu 10-20% af sín­um tekj­um í hend­ur lögaðila á lands­byggðinni. Því eru það sjálf­sögð mann­rétt­indi að bú­setu­skil­yrði á Vest­fjörðum kom­ist inn í tutt­ug­ustu og fyrstu öld­ina. Við vilj­um að fólkið okk­ar sé sett í for­gang og hér verði sköpuð skil­yrði til at­vinnupp­bygg­ing­ar í sátt íbúa og nátt­úru.

Vest­f­irðing­ar eru ekki að biðja um neitt meira en fá að bjarga sér.“

mbl.is