„Bæjarstjóranum til skammar“

Ísafjörður.
Ísafjörður. mbl.is/Sigurður Bogi

„Þessi fram­ganga er ekki bara að mínu mati bæj­ar­stjór­an­um til skamm­ar held­ur bæj­ar­fé­lag­inu líka ef það ætl­ar að standa við bakið á svona mál­flutn­ingi,“ seg­ir Óðinn Sigþórs­son, nefnd­armaður í starfs­hópi sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra um stefnu­mörk­un í fisk­eldi.

Gísli Hall­dór Hall­dórs­son, bæj­ar­stjóri Ísa­fjarðarbæj­ar, sagðist í sam­tali við mbl.is fyrr í dag ekki ætla að biðjast af­sök­un­ar á um­mæl­um sem hann lét falla á bæj­ar­stjórn­ar­fundi 24. ág­úst.

Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.
Gísli Hall­dór Hall­dórs­son bæj­ar­stjóri Ísa­fjarðarbæj­ar. mbl.is/​Sig­urður Bogi

Aðdrótt­an­ir sem stand­ast ekki

Óðinn seg­ir að ekki sé verið að biðja Gísla Hall­dór um af­sök­un­ar­beiðni í bréfi sem nefnd­ar­menn sendu bæj­ar­stjórn, for­seta bæj­ar­stjórn­ar og for­manni bæj­ar­ráðs á Ísaf­irði. Í bréf­inu seg­ir að í um­mæl­um bæj­ar­stjóra hafi fal­ist „gróf og ósönn ásök­un“ um að full­trúi veiðirétt­ar­hafa og full­trú­ar lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna hafi sýnt af sér óheil­indi og óheiðarleika í störf­um sín­um. Í bréf­inu er kraf­ist op­in­berr­ar af­sök­un­ar Ísa­fjarðarbæj­ar.

„Þetta er í ætt við annað sem hann sagði á þess­um fundi,“ seg­ir hann um viðtalið við Gísla á mbl.is. „Hann er að drótta að nefnd­ar­mönn­um að þeir hafi með ein­hverj­um óeðli­leg­um hætti kom­ist að þess­ari niður­stöðu sem áhættumatið kveður á um. Það kem­ur skýrt fram í bréf­inu að þau um­mæli stand­ast ekki.“

Óðinn Sigþórsson.
Óðinn Sigþórs­son. Ljós­mynd/​Aðsend

Ætti að kynna sér mál­in bet­ur 

Óðinn bæt­ir við að um­mæli Gísla um að hann hafi rokið út af fundi og neitað að skrifa und­ir séu ekki sam­kvæmt því sem gerðist. Bók­un­in sem kom fram í lok­in hafi ekki varðað sam­komu­lagið held­ur meg­in­efni skýrsl­unn­ar sem lá fyr­ir.

„Ég held að þessi ágæti bæj­ar­stjóri ætti að kynna sér þau mál sem hann er að gaspra um op­in­ber­lega með þess­um hætti.“

Varðandi orð bæj­ar­stjór­ans á bæj­ar­stjórn­ar­fund­in­um seg­ir hann að þau hafi verið birt op­in­ber­lega og hver sem er geti kynnt sér það sem hann sagði. „Það er ekk­ert ofsagt í okk­ar bréfi hvað það varðar.“

mbl.is