„Fyrst og fremst kjánalegt“

Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.
Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. mbl.is/Sigurður Bogi

Gísli Hall­dór Hall­dórs­son, bæj­ar­stjóri Ísa­fjarðarbæj­ar, ætl­ar ekki að biðja nefnd­ar­menn í starfs­hópi sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra um stefnu­mörk­un í fisk­eldi af­sök­un­ar vegna um­mæla sem hann lét falla á bæj­ar­stjórn­ar­fundi 24. ág­úst. Hann seg­ir að viðbrögð nefnd­ar­mann­anna, sem hafa kraf­ist op­in­berr­ar af­sök­un­ar Ísa­fjarðarbæj­ar, hafi komið sér á mjög á óvart.

Veit ekki hver gerði hvað 

Í bréfi nefnd­ar­manna til bæj­ar­stjórn­ar, for­seta bæj­ar­stjórn­ar og for­manns bæj­ar­ráðs seg­ir að í um­mæl­um bæj­ar­stjóra hafi fal­ist „gróf og ósönn ásök­un“ um að full­trúi veiðirétt­ar­hafa og full­trú­ar lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna hafi sýnt af sér óheil­indi og óheiðarleika í störf­um sín­um.

„Ég var bú­inn að fá veður af því að þetta stæði til. Þess vegna var ég bú­inn að hlusta aft­ur á ræðu mína sem er hægt að nálg­ast á Face­book-síðu Ísa­fjarðarbæj­ar. Ég segi auðvitað ekki neitt um óheil­indi og óheiðarleika og ég veit svo sem ekki hver gerði hvað í því sem ég kalla hrossa­kaup og plott,“ seg­ir Gísli Hall­dór í sam­tali við mbl.is.

Fleiri í nefnd­inni gátu stýrt „plott­inu“

Hann kveðst ekki hafa gert sér grein fyr­ir því að ræðan myndi vekja eins hörð viðbrögð hjá nefnd­ar­mönn­un­um sem skrifa und­ir bréfið og raun ber vitni, því fleiri í nefnd­inni hafi verið þess megn­ug­ir að stýra því sem hann kall­ar plott.

„Reynd­ar nær þessi at­b­urðarrás öll út fyr­ir nefnd­ina. Áhættumatið er búið til með ákveðnum hætti og nálg­un­in á því. Ég ít­reka það að ég hef ekk­ert sagt um hver hafi sýnt óheil­indi og óheiðarleika en ég kalla þessa at­b­urðarrás plott og hrossa­kaup þó svo að eng­ir hest­ar hafi skipt um eig­end­ur.“

Ekki á ábyrgð bæj­ar­stjórn­ar

Hann bend­ir á að fjöl­miðlar hafi haft það eft­ir full­trúa veiðirétt­hafa í nefnd­inni þegar hann „rauk út af fundi og neitaði að skrifa und­ir“ að náðst hefði ákveðið sam­komu­lag sem lax­eld­is­fyr­ir­tæk­in væru að brjóta með því að ætla að koma með bók­un.

„Menn geta kallað þetta annað en hrossa­kaup en svona sá ég þetta. Mig lang­ar að taka sér­staklaga fram að mér finnst orð mín á fundi bæj­ar­stjórn­ar í beinni út­send­ingu alls ekki geta verið á ábyrgð bæj­ar­stjórn­ar. Það er í raun og veru ákaf­lega kjána­legt að reyna að halda því fram.“

Muntu því ekki draga um­mæli því til baka og biðjast af­sök­un­ar?

„Nei, þá fyrst væri ég far­inn að ljúga ef ég væri til­bú­inn til þess,“ svar­ar Gísli.

Tekið fyr­ir á mánu­dag

Hann reikn­ar með því að fjallað verði um bréf nefnd­ar­mann­anna á fundi bæj­ar­ráðs næst­kom­andi mánu­dag. „En ég hlýt að bera sjálf­ur fulla ábyrgð á þess­um orðum og það ger­ir eng­inn fyr­ir mig, hvorki BB [Bæj­ar­ins besta] né bæj­ar­stjórn.“

Í bréf­inu er farið fram á af­sök­un­ar­beiðni frá Ísa­fjarðarbæ inn­an fjór­tán daga. Ef hún berst ekki áskilja nefnd­ar­menn sér rétt til að fá um­mæli bæj­ar­stjóra ómerkt með öðrum til­tæk­um úrræðum. Spurður seg­ir Gísli þess­ar kröf­ur ekki vera harka­leg­ar.

„Mér finnst þetta fyrst og fremst kjána­legt en það er aug­ljóst að ein­hver hef­ur komið við viðkvæm­an punkt.“

mbl.is