Krefjast opinberrar afsökunarbeiðni

Nefnd­ar­menn í starfs­hópi sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra um stefnu­mörk­un í fisk­eldi hafa farið fram á op­in­bera af­sök­un­ar­beiðni Ísa­fjarðarbæj­ar vegna um­mæla sem bæj­ar­stjór­inn lét falla á bæj­ar­stjórn­ar­fundi 24. ág­úst sl.

Í bréfi nefnd­ar­manna til bæj­ar­stjórn­ar, for­seta bæj­ar­stjórn­ar og for­manns bæj­ar­ráðs seg­ir að í um­mæl­um bæj­ar­stjóra hafi fal­ist „gróf og ósönn ásök­un“ um að full­trúi veiðirétt­ar­hafa og full­trú­ar lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna hafi sýnt af sér óheil­indi og óheiðarleika í störf­um sín­um.

„Vísað er sér­stak­lega til þeirra full­yrðinga bæj­ar­stjóra að fram­an­greind­ir full­trú­ar hafi „plottað“ og haft „hrossa­kaup“ sem leiddu til þeirr­ar niður­stöðu að ekki yrði leyft sjókvía­eldi í Ísa­fjarðar­djúpi og lax­eld­is­fyr­ir­tæki full­trúa Lands­sam­bands fisk­eld­is­stöðva nytu jafn­framt góðs af meint­um hrossa­kaup­um.“

Nefnd­ar­menn ít­reka sér­stak­lega að sam­komu­lag í nefnd­inni um að leggja áhættumat Haf­rann­sókna­stofn­un­ar til grund­vall­ar sem stjórn­tæki við fram­leiðslu­heim­ild­ir á frjó­um laxi í sjókví­um við Ísland hafi verið gert áður en áhættumatið lá fyr­ir.

Þá hafi hags­munaaðilar ekki haft áhrif á áhættumatið eða for­send­ur þess.

Und­ir­ritaðir; Óðinn Sigþórs­son, Guðmund­ur Gísla­son og Kjart­an Ólafs­son, segja ásak­an­ir bæj­ar­stjóra ærumeiðandi og óboðleg­ar op­in­beru stjórn­valdi. Hon­um hafi verið boðið að draga um­mæli sín til baka og leggja fram af­sök­un­ar­beiðni en því hafi hann hafnað.

Farið er fram á op­in­bera af­sök­un­ar­beiðni af hálfu bæj­ar­yf­ir­valda og svara óskað inn­an 14 daga. Áskilja nefnd­ar­menn­irn­ir sér rétt til að fá um­mæli bæj­ar­stjóra ómerkt með öðrum til­tæk­um úrræðum ef ekki verður orðið við kröf­unni.

mbl.is