„Okkar markmiði er náð“

Ísafjörður.
Ísafjörður. mbl.is/Sigurður Bogi

„Það er búið að leiðrétta þenn­an áburð bæj­ar­stjór­ans op­in­ber­lega með þeim hætti að við telj­um ekki ástæðu til að vera að elt­ast við þetta leng­ur. Okk­ar mark­miði er náð,” seg­ir Óðinn Sigþórs­son, nefnd­armaður í starfs­hópi sjáv­ar- og land­búnaðarráðherra um stefnu­mörk­un í fisk­eldi.

Nefnd­ar­menn­irn­ir sendu bæj­ar­ráði Ísa­fjarðarbæj­ar bréf í byrj­un sept­em­ber þar sem því var veitt­ur var tveggja vikna frest­ur til að biðjast af­sök­un­ar op­in­ber­lega á um­mæl­um Gísla Hall­dórs Hall­dórs­son­ar, bæj­ar­stjóra Ísa­fjarðarbæj­ar, sem hann lét falla á bæj­ar­stjórn­ar­fundi 24. ág­úst.

Í bréf­inu sagði að í um­mæl­um bæj­ar­stjóra hafi fal­ist „gróf og ósönn ásök­un“ um að full­trúi veiðirétt­ar­hafa og full­trú­ar lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna hafi sýnt af sér óheil­indi og óheiðarleika í störf­um sín­um.

Ef bæj­ar­stjórn­in yrði ekki við kröf­unni áskildu nefnd­ar­menn­irn­ir sér rétt til að fá um­mæl­in ómerkt með öðrum til­tæk­um úrræðum.

Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.
Gísli Hall­dór Hall­dórs­son bæj­ar­stjóri Ísa­fjarðarbæj­ar. mbl.is/​Sig­urður Bogi

Um­mæl­in á ábyrgð bæj­ar­stjóra

Ákveðið var á fundi bæj­ar­ráðs í síðustu viku að biðjast ekki af­sök­un­ar op­in­ber­lega á um­mæl­un­um. Þar kom fram að um­mæl­in væru al­farið á ábyrgð bæj­ar­stjóra.

„Þau virðast ekki átta sig á því að birt­ing þeirra [um­mæl­anna] op­in­ber­lega er á ábyrgð sveit­ar­fé­lags­ins. Það er í raun­inni það sem við vor­um að benda á í okk­ar bréfi,” seg­ir Óðinn og tek­ur fram að ekki verði farið lengra með málið.

Óðinn Sigþórsson.
Óðinn Sigþórs­son. Ljós­mynd/​Aðsend

„Svo verða kjörn­ir full­trú­ar bæj­ar­ins að eiga það við sig hvort þeir fari eft­ir skráðum siðaregl­um sem þeir birta á heimasíðu sveit­ar­fé­lags­ins. Þær virðast hafa verið lagðar dá­lítið til hliðar í þessu máli,” bæt­ir Óðinn við.

Úr fund­ar­gerð bæj­ar­ráðs Ísa­fjarðarbæj­ar:

„Vegna óska nefnd­ar­manna í starfs­hópi um fisk­eld­is­mál um að bæj­ar­stjórn biðjist af­sök­un­ar á um­mæl­um bæj­ar­stjóra á bæj­ar­stjórn­ar­fundi 25. ág­úst sl. þá vill bæj­ar­ráð árétta að bæj­ar­stjóri Ísa­fjarðarbæj­ar ber ábyrgð á eig­in um­mæl­um á bæj­ar­stjórn­ar­fundi, ekki bæj­ar­stjórn Ísa­fjarðarbæj­ar.

Jafn­framt vill bæj­ar­ráð vekja at­hygli á að það hefði ekki átt að þurfa að koma nefnd­ar­mönn­um á óvart að til­laga þeirra um að loka Ísa­fjarðar­djúpi fyr­ir lax­eldi væri um­deild og myndi skapa mikl­ar umræður. Nefnd­ar­menn hljóta að hafa gert sér grein fyr­ir því.

Bæj­ar­ráð vill jafn­framt hvetja alla aðila þessa máls til þess að missa ekki sjón­ar á aðal­atriðinu sem er að tryggja að lax­eldi hefj­ist í Ísa­fjarðar­djúpi eins fljótt og auðið er. Til að svo sé þurfa all­ir hags­munaaðilar að vinna sam­an og hugsa í lausn­um.”

mbl.is