Ósonið gerir gæfumuninn

Gunnlaugur Hólm og Hafsteinn Már Steinarsson, eigendur Eldislausna.
Gunnlaugur Hólm og Hafsteinn Már Steinarsson, eigendur Eldislausna.

Eld­is­lausn­ir eru stærsta þjón­ustu­fyr­ir­tæki fyr­ir land­eldi á Íslandi og býður al­hliða lausn­ir fyr­ir fisk­eldi. Eld­is­lausn­ir eru í eigu þriggja fyr­ir­tækja sem öll búa yfir mik­illi þekk­ingu og reynslu úr fisk­eldi og vinnu fyr­ir sjáv­ar­út­veg.

Þjón­ust­an sem fyr­ir­tækið býður upp á er fjöl­breytt, en nefna má að það sinn­ir ráðgjöf fyr­ir fisk­eld­is­fyr­ir­tæki, ann­ast upp­setn­ingu og teng­ing­ar á öll­um búnaði í fisk­eldi, sér um alla al­menna pípu- og raflagnaþjón­ustu, dælu­viðgerðir, iðnstýr­ing­ar og köf­un­arþjón­ustu. Fyr­ir­tækið hef­ur einnig umboð fyr­ir hreinsitroml­ur, ljós í kví­ar og í eld­iskör.

Á sjáv­ar­út­vegs­sýn­ing­unni kynntu Eld­is­lausn­ir, í sam­starfi við fyr­ir­tækið Redox í Nor­egi, óson­búnað í fisk­eldi og sjáv­ar­út­vegi.

Redox er eitt fremsta fyr­ir­tæki í Nor­egi á þessu sviði og hef­ur náð frá­bær­um ár­angri við gerileyðingu og sótt­hreins­un í land­stöðvum fisk­eld­is, mat­væla­vinnsl­um, sund­laug­um og skip­um. Fyr­ir­tækið er með viðskipti sín á Íslandi.

Tálknafjörður. Fiskeldisker í seiðastöð Arnarlax.
Tálkna­fjörður. Fisk­eldisker í seiðastöð Arn­ar­lax. Ljós­mynd/​Eld­is­lausn­ir

Óson til gerileyðing­ar

„Við hjá Eld­is­lausn­um mun­um kynna kosti ósons sem eru meðal ann­ars minni vatns­notk­un, það súr­efn­is­bæt­ir vatnið og dreg­ur þannig úr lykt auk þess að gera vatnið tær­ara, auka vatns­gæði, örva vöxt fisks­ins og út­rýma vatns­born­um bakt­erí­um og veir­um. Aðferðin kem­ur í veg fyr­ir sjúk­dóma í fiski af völd­um bakt­ería, veira, sveppa og frum­dýra,“ sögðu Gunn­laug­ur Hólm og Haf­steinn Már Stein­ars­son, eig­end­ur Eld­is­lausna í sam­tali við blaðamann fyr­ir sýn­ing­una.

„Við bjóðum einnig upp á heild­ar­lausn­ir í raf­magns- og pípu­lögn­um ásamt stýr­ing­um og for­rit­un fyr­ir flest sem viðkem­ur fisk­eldi. Fóður-, súr­efn­is- og dælu­stýr­ing­ar og fleira.“

Eld­is­lausn­ir smíða mikið af búnaði fyr­ir fisk­eldi eins og loft­ara, Oxy Clever-súr­efnis­kerfi og súr­efniskúta, sem og ýmsa sér­smíði, bæði úr plasti og stáli. Eld­is­lausn­ir vinna fyr­ir flest stóru fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in, t.d. Arn­ar­lax, Laxa, Íslands­bleikju, Nátt­úru, Ísþór og fleiri.

Eld­is­lausn­ir eru með umboð fyr­ir Rovatti-dæl­ur og Fel­som-bor­holu­dæl­ur, sem og ann­an búnað fyr­ir fisk­eldið. „Við eig­um ávallt bor­holu­dæl­ur á lag­er frá 4“ til 12“ en einnig erum við með viðgerðir á dæl­um og húðun á þeim.“

Rúmgott og vandað fiskeldisker, uppsett og tilbúið til notkunar.
Rúm­gott og vandað fisk­eldisker, upp­sett og til­búið til notk­un­ar.

„Fisk­eldi ríf­ur staðina upp“

Fyr­ir­tækið flyt­ur inn fisk­eldisker sem hafa verið sett upp á Gi­leyri fyr­ir Bæj­ar­vík og tekið þátt í upp­bygg­ingu stöðvar­inn­ar þar. Jafn­framt hef­ur fyr­ir­tækið unnið náið með Löx­um í upp­bygg­ingu þeirra á nýrri eld­is­stöð í Þor­láks­höfn og við end­ur­nýj­un á seiðaeld­is­stöðvum á Bakka og Fiskalóni í Ölfusi, segja þeir Gunn­laug­ur og Haf­steinn.

„Að okk­ar mati er fisk­eldið frá­bær viðbót við ís­lenskt at­vinnu­líf, sér­stak­lega á Vest­fjörðum þar sem maður hef­ur séð þorp­in rísa úr öskustónni með fisk­eldi. Þar má taka Bíldu­dal sem dæmi, en þar er blóm­legt at­vinnu­líf í dag og vant­ar fólk til starfa.

Fisk­eldi er að rífa staðina upp, bæði fyr­ir aust­an og vest­an, þegar bol­fisk­vinnsla hef­ur dreg­ist sam­an eða flust annað. Við leggj­um áherslu á góða þjón­ustu, við erum alltaf reiðubún­ir þegar okk­ar er þörf, en það er grunn­ur­inn að góðu sam­starfi við viðskipta­vini okk­ar,“ segja þeir Gunn­laug­ur og Haf­steinn.

mbl.is