Leita að eldislöxum í ám á Vestfjörðum

Frá Dýrafirði.
Frá Dýrafirði. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Eft­ir­lits­menn Fiski­stofu kanna um þess­ar mund­ir hvort eld­islax­ar finn­ist í ám nærri sjókvía­eld­is­stöðvum á Vest­fjörðum. Hef­ur stof­an haft sam­ráð við Haf­rann­sókna­stofn­un um leit­ina, en stofn­un­in tel­ur að niður­stöður könn­un­ar­inn­ar geti gagn­ast við áhættumat vegna hugs­an­legr­ar erfðablönd­un­ar laxa á Vest­fjörðum.

Þetta kem­ur fram í bréfi sem Fiski­stofa hef­ur sent Ísa­fjarðarbæ, en greint er frá bréf­inu á frétta­vefn­um Bæj­ar­ins besta.

Seg­ir þar að í bréf­inu sé óskað eft­ir leyfi bæj­ar­ins til sýna­töku í Sandá í Dýraf­irði, þar sem bær­inn eigi land að ánni. Fram kem­ur að bær­inn hafi veitt leyfið en sett það skil­yrði að fá upp­lýs­ing­ar um fjölda laxa sem finn­ist við leit­ina og hvernig skipt­ing þeirra sé í eld­islaxa og nátt­úru­lega laxa, um leið og sýna­tök­unni ljúki.

Nán­ar á vef Bæj­ar­ins besta.

mbl.is