Írar stefna á að auka fiskeldi

Fiskeldi. Mynd úr safni.
Fiskeldi. Mynd úr safni. mbl.is/Helgi Bjarnason

Írsk stjórn­völd stefna að því að stór­auka mat­væla­fram­leiðslu sína á næstu árum. Hluti af þeirri áætl­un er að auka fisk­eldi, sem þegar gegn­ir veiga­miklu hlut­verki á Írlandi og ekki síst í dreif­býli.

Þetta kom fram í ræðu Michael Creed, land­búnaðar-, mat­væla- og sjáv­ar­út­vegs­ráðherra Írlands, á ráðstefnu Global Aquacult­ure Alli­ance í Dyfl­inni á Írlandi fyrr í mánuðinum. Frétta­vef­ur­inn Sea­food­Source grein­ir frá en vísað er í ræðuna á vef Lands­sam­bands fisk­eld­is­stöðva.

„Fisk­eldi og sjáv­ar­út­veg­ur eru mik­il­væg­ur hluti af hag­kerfi Írlands og fyr­ir­tæk­in eru al­mennt staðsett á til­tölu­lega af­skekkt­um stöðum og við strand­lengj­una, þar sem tæki­færi til upp­bygg­ing­ar á sjálf­bærri at­vinnu­starf­semi eru tak­mörkuð,“ sagði ráðherr­ann.

Benti hann á að vöxt­ur í fisk­eldi á Írlandi hefði verið nokk­ur á síðustu árum, „en okk­ur er ljóst að við þurf­um að vaxa hraðar á þessu sviði.“

Straum­línu­laga fyr­ir­komu­lag leyfa

Fram kem­ur að stjórn­völd lands­ins hafi stefnt sam­an 35 hags­munaaðilum á sviði fisk­eld­is, land­búnaðar og fisk­veiða og -vinnslu, sem fengið hafi það verk­efni að setja fram áætl­un um aukna mat­væla­fram­leiðslu á næstu tíu árum.

Með henni sé stefnt að því að auka mat­væla­fram­leiðsluna um 60 pró­sent á þess­um tíma og að út­flutn­ing­ur­inn vaxi um 85%, auk þess sem störf­um verði fjölgað um 23 þúsund á þessu sviði. 

Sagði ráðherr­ann mik­il­vægt að fara í ofan í kjöl­inn á öllu því fyr­ir­komu­lagi leyfa sem snýr að fisk­eld­inu. Írsk stjórn­völd væru staðráðin í því að straum­línu­laga það og á sama tíma varðveita nátt­úru lands­ins.

mbl.is