Stækkun eldisstöðvarinnar á Stað opnuð

Staður í Grindavík
Staður í Grindavík Samherji

Íslands­bleikja opnaði síðastliðinn föstu­dag nýja stækk­un við eld­is­stöð sína að Stað í Grinda­vík. Um er að ræða átta ný eldisker sem eru sex­tán þúsund rúm­metr­ar að stærð og bæt­ast við nú­ver­andi 28 þúsund rúm­metra sem þegar eru á svæðinu.

"Það eru liðnir ára­tug­ir síðan byggð hafa verið svipuð mann­virki á landi til bleikju­eld­is. Við vor­um með þetta verk­efni í start­hol­un­um í lang­an tíma og það er virki­lega ánægju­legt að sjá þessi glæsi­legu kör í dag sem munu fyll­ast af fiski eitt af öðru á næstu mánuðum. Þessi upp­bygg­ing er fyrsta stóra skrefið okk­ar í að auka fram­leiðslu­get­una og byggja und­ir framtíðar vöxt bleikju­eld­is á landi." Seg­ir Jón Kjart­an Jóns­son fram­kvæmda­stjóri Íslands­bleikju

Í til­efni dags­ins var slegið upp veislutjaldi og verk­tök­um sem hafa komið að bygg­ing­unni og starfs­fólki fé­lags­ins ásamt fjöl­skyld­um þeirra boðið til grill­veislu í eld­is­stöðinni. Þangað mættu um hundrað manns sem skoðuðu stöðina og gæddu sér á dýr­ind­is heil­grilluðu lambi með til­heyr­andi meðlæti.

Átta ný ker voru opnuð á föstudaginn síðastliðinn
Átta ný ker voru opnuð á föstu­dag­inn síðastliðinn Sam­herji

Íslands­bleikja er stærsti bleikju fram­leiðandi í heimi og fram­leiðir tæp 3000 tonn af bleikju ár­lega. Með þess­ari nýju eld­is ein­ingu er áætlað að auka heild­ar­fram­leiðslu á bleikju um 25% á ári þegar öll ker­in verða kom­in í fulla fram­leiðslu. Hjá fé­lag­inu starfa um sjö­tíu manns í fimm eld­is­stöðvum á Suður­landi, Reykja­nesi og Öxnafirði en í Grinda­vík er fer einnig fram slátrun og full­vinnsla fyr­ir afurðir fé­lags­ins. 

Þorsteinn Már Baldvinsson og Hjalti Bogason klippa á borðann. Jón …
Þor­steinn Már Bald­vins­son og Hjalti Boga­son klippa á borðann. Jón Kjart­an Jóns­son hvet­ur þá til dáða Sam­herji
mbl.is