Máli gegn Arnarlaxi vísað frá dómi

Frá laxeldi Arnarlax.
Frá laxeldi Arnarlax. mbl.is/Helgi Bjarnason

Héraðsdóm­ur Reykja­vík­ur hef­ur vísað frá máli sem höfðað var til ógild­ing­ar starfs- og rekstr­ar­leyf­is Arn­ar­lax hf. til sjókvía­eld­is á laxi í Arnar­f­irði.

Málið var höfðað af mál­sókn­ar­fé­lag­inu Nátt­úru­vernd 1, sem sam­an stend­ur meðal ann­ars af veiðirétt­ar­höf­um í Haffjarðará á Snæ­fellsnesi, Laxá á Ásum og í Fífustaðadal.

Þá eru einnig í fé­lag­inu ann­ars veg­ar eig­andi fyr­ir­tæk­is í Arnar­f­irði, sem kveðst verða fyr­ir sjón­meng­un af kvía­stæði Arn­ar­lax, og hins veg­ar hlunn­inda­hafi æðar­varps sem sagt er standa í námunda við kvía­stæðið.

Hélt fé­lagið því fram að hlunn­indi þess­ara aðila muni skerðast, nái lax­eldið fram að ganga. Ef eldið verði stækkað „sé svo gott sem vitað að villt­ir laxa­stofn­ar í ám á Íslandi muni eyðast inn­an fárra ára,“ seg­ir í máls­ástæðum fé­lags­ins.

Lík­leg­ur til að hring­sóla um landið

Vísað var til þess að um Ísland sé rétt­sæl­is hring­straum­ur í efstu sjáv­ar­lög­um. Eld­is­fisk­ur sem sleppi hér við land sé sam­kvæmt norsk­um rann­sókn­um lík­leg­ur til að hring­sóla um landið rétt­sæl­is og leita upp í ár hvar sem er á land­inu. Því sé ljóst að lax­eldi af þeirri stærðargráðu sem hér um ræði muni hafa áhrif á nátt­úru­lega laxa­stofna um allt land.

Alls var þrem­ur aðilum stefnt; Arn­ar­laxi, Mat­væla­stofn­un og Um­hverf­is­stofn­un.

Dóm­ur­inn komst hins veg­ar að því að máls­ástæður fé­lags­ins og sönn­un­ar­færsla, um það hvort ein­stak­ir aðilar inn­an þess hafi lögv­arða hags­muni af úr­lausn máls­ins, væru ekki með nægi­lega eins­leit­um hætti til að upp­fyllt væru skil­yrði þess ákvæðis um mál­sókn­ar­fé­lög sem finna má í lög­um um meðferð einka­mála.

Var mál­inu því vísað frá dómi.

mbl.is