„Brottkast og svindl er ólíðandi“

Þorski kastað fyrir borð. Myndin er úr safni.
Þorski kastað fyrir borð. Myndin er úr safni. mbl.is/Rax

Stjórn­in for­dæm­ir hvers­kon­ar sóun á verðmæt­um við meðhöndl­un okk­ar helstu nátt­úru­auðlind­ar,“ seg­ir í til­kynn­ingu frá stjórn Sam­taka fisk­vinnslu og út­flytj­enda, SFÚ. Til­efnið er frétta­skýr­ingaþátt­ur Kveiks, sem sýnd­ur var á RÚV í gær, en í hon­um voru sýnd­ar mynd­ir af miklu brott­kasti afla.

„Brott­kast og svindl er ólíðandi,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni. Þar er skorað á næstu rík­is­stjórn að grípa strax til viðeig­andi ráðstaf­ana til að stöðva slíka sóun. Kerfið verði að tryggja að hags­mun­ir sam­fé­lags­ins séu tryggðir og að sóun verðmæta stöðvist og heyri sög­unni til.

„Eðli­legt hlýt­ur að telj­ast, að í sem flest­um til­fell­um eigi viðskipti sér stað í gegn­um þriðja aðila eins og þekkt er í viðskipt­um um fisk­markaði sem staðsett­ir eru í flest­um höfn­um lands­ins. Óeðli­leg­ir viðskipta­hætt­ir við meðhöndl­un auðlind­ar­inn­ar eiga að heyra sög­unni til.“

Mynd­efnið sem sýnt var í þætt­in­um í gær sýndi brott­kast af fiski­skip­inu Kleif­a­bergi. Á RÚV er haft eft­ir Guðmundi Kristjáns­syni, út­gerðar­stjóra Brims, að „tölu­vert hafi dregið úr brott­kasti eft­ir hug­ar­fars­breyt­ingu um um­gengni við auðlind­ina.“ Hann hafi aldrei gefið fyr­ir­skip­un um brott­kast.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina