Skipstjórinn fagnar rannsókninni

Kleifaberg RE-70. Í mörg ár hefur skipið verið meðal aflahæstu …
Kleifaberg RE-70. Í mörg ár hefur skipið verið meðal aflahæstu skipa. Mbl.is/Bragi Ragnarsson

„Ég fagna þess­ari rann­sókn af heil­um hug,“ seg­ir Víðir Jóns­son, skip­stjóri til 20 ára á Kleif­a­bergi. Guðmund­ur Kristjáns­son, for­stjóri út­gerðarfé­lags­ins Brims, sagði fyrr í kvöld að hann hygðist á morg­un kæra mynd­band sem birt var í kvöld­frétt­um RÚV til lög­reglu, með það fyr­ir aug­um að kom­ast að því hverj­ir hefðu hent glæ­nýj­um fiski af skip­inu í sjó­inn.

Fram kom á RÚV að mynd­bandið hefði verið tekið um borð í Kleif­a­bergi fyr­ir rúmu ári. Víðir seg­ir að um­fjöll­un­in hafi fengið á hann. Hann geti alls staðar staðið keik­ur og gert grein fyr­ir því sem mynd­bandið frá því í þætti Kveiks í gær­kvöldi hafi sýnt, en það mynd­efni var tekið á ár­un­um 2008-2011.

Hann vill ekki ræða hvernig hann telji að mynd­bandið sem spilað var í kvöld hafi komið til en seg­ist standa með út­gerðinni. „Ég er bú­inn að vera al­veg miður mín yfir þessu.“

mbl.is

Bloggað um frétt­ina