Sjókvíaeldi tvöfaldast í Dýrafirði

Stór og fallegur lax á land.
Stór og fallegur lax á land. mbl.is/Helgi Bjarnason

Arctic Sea Farm, dótt­ur­fé­lag Arctic Fish, fær ein­hvern næstu daga af­hent rekstr­ar- og starfs­leyfi fyr­ir fram­leiðslu á allt að 4000 tonn­um á laxi í sjókví­um í Dýraf­irði.

Það þýðir að fé­lagið get­ur tvö­faldað fram­leiðslu sína, upp í 4.200 tonn, á næstu árum. Arctic Sea Farm vinn­ur að frek­ari stækk­un, bæði í Dýraf­irði og fleiri fjörðum Vest­fjarða, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um stækk­un­ina í Morg­un­blaðinu í dag.

Arctic Sea Farm er með leyfi til að fram­leiða 2.000 tonn af laxi eða regn­bogasil­ungi í Dýraf­irði auk ann­ars leyf­is upp á 200 tonn. Fé­lagið ein­beitti sér lengi að eldi á regn­bogasil­ungi en er að færa sig yfir í lax­eldi. Frá því að nú­ver­andi leyfi fékkst, fyr­ir um sex árum, hef­ur Arctic Sea Farm unnið að stækk­un í 4.000 tonna árs­fram­leiðslu.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: