Loðnuvinnslan mótmælir áformum um fiskeldi

Löndun hjá Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði.
Löndun hjá Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði. mbl.is/Albert Kemp

Stjórn Loðnu­vinnsl­unn­ar hf. á Fá­skrúðsfirði mót­mæl­ir harðlega áform­um um stór­fellt lax­eldi í Fá­skrúðsfirði. Seg­ir í til­kynn­ingu frá stjórn út­gerðar­inn­ar að áformin séu nú í um­sagn­ar­ferli án þess að fram hafi farið heild­armat á áhrif­um þess á líf­ríki og burðarþol fjarðar­ins.

„Sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi frummatsáætl­un eru áform um 15.000 tonna lax­eldi í Fá­skrúðsfirði sem fylgja munu marg­vís­leg um­hverf­isáhrif. Fyr­ir­tækið Fisk­eldi Aust­fjarða hf. hef­ur nú þegar leyfi fyr­ir 3.000 tonna fram­leiðslu á regl­bogasil­ungi/​laxi sem ekki er enn farið að nýta og til viðbót­ar eru í ferli áætlan­ir fyr­ir­tæk­is­ins um 7.854 tonna fram­leiðslu­aukn­ingu í Fá­skrúðsfirði,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

„Þá áforma Lax­ar fisk­eldi ehf. 4.000 tonna lax­eldi í firðinum en gangi þessi áform eft­ir stefn­ir í um 15.000 tonna eld­is­fram­leiðslu í Fá­skrúðsfirði, sem er sam­bæri­legt og öll eld­is­fram­leiðsla í land­inu í dag.“

Stjórn­in seg­ir að sam­kvæmt heim­ild­um frá Lands­sam­bandi fisk­eld­is­stöðva verði til, við fram­leiðslu á einu tonni af laxi, úr­gang­ur sem sam­svar­ar klóakrennsli frá átta manns.

Þannig jafn­gildi meng­un frá 15.000 tonna lax­eldi í Fá­skrúðsfirði því að skólpi frá 120 þúsund manna byggð verði veitt óhreinsuðu í fjörðinn.

Stjórnin furðar sig á því að umsagna fyrirtækisins hafi ekki …
Stjórn­in furðar sig á því að um­sagna fyr­ir­tæk­is­ins hafi ekki verið leitað. mbl.is/​Helgi Bjarna­son

Hreinn sjór und­ir­staða hrogna­vinnsl­unn­ar

Enn frem­ur seg­ir í til­kynn­ing­unni að Loðnu­vinnsl­an sé stærsti at­vinnu­rek­and­inn á Fá­skrúðsfirði, en þar starfa að jafnaði 150 manns. Er hrogna­vinnsla sögð mjög mik­il­væg fyr­ir rekst­ur­inn, enda sé hún á þessu ári yfir 20% af fram­leiðslu­verðmæti fyr­ir­tæk­is­ins.

„Und­ir­staða þess­ar­ar vinnslu er mikið magn af hrein­um og ómenguðum sjó sem dælt er úr firðinum. Stjórn Loðnu­vinnsl­unn­ar ger­ir al­var­lega at­huga­semd við að ekki var leitað um­sagn­ar fé­lags­ins um þessi áform og að hvergi í frummats­skýrsl­unni er minnst á þann mögu­leika að meng­andi efni frá fyr­ir­huguðu fisk­eldi muni hafa áhrif á gæði sjáv­ar­ins og þar með hrogna­vinnslu í Fá­skrúðsfirði.“

Tekið er fram að sam­kvæmt frummats­skýrslu lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna sé staðsetn­ing og stærð fyr­ir­hugaðra sjókvía mjög á reiki. Um­fangið sem þar sé sýnt sé allt frá því að vera lítið og að því að firðinum sé nán­ast lokað.

Stjórnin segir að samkvæmt heimildum frá Landssambandi fiskeldisstöðva verði til, …
Stjórn­in seg­ir að sam­kvæmt heim­ild­um frá Lands­sam­bandi fisk­eld­is­stöðva verði til, við fram­leiðslu á einu tonni af laxi, úr­gang­ur sem sam­svar­ar klóakrennsli frá átta manns. mbl.is/​Helgi Bjarna­son

Fjör­eggið á valdi tveggja stofn­ana

„Þar sem gert er ráð fyr­ir mestri starf­semi er fjörður­inn um 1300 metr­ar á breidd og sigl­inga­leiðin inn­an við 400 metr­ar. Það er því ljóst að fyr­ir­hugað lax­eldi mun þrengja veru­lega að sigl­inga­leiðum en gott aðgengi skipa er fyr­ir­tæk­inu lífs­nauðsyn­legt,“ seg­ir að lok­um í til­kynn­ing­unni.

„Stjórn Loðnu­vinnsl­unn­ar furðar sig á að þessi áform hafi verið í und­ir­bún­ingi í nær 4 ár án þess að um­sagna fyr­ir­tæk­is­ins hafi verið leitað. Þá er það óskilj­an­legt að sveit­ar­fé­lagið Fjarðabyggð skuli ekki hafa neina lög­sögu í máli sem varðar starf­semi sem hef­ur verið ein af lífæðum Fá­skrúðsfjarðar um ára­bil, held­ur er það fjör­egg al­gjör­lega á valdi Um­hverf­is­stofn­un­ar og Skipu­lags­stofn­un­ar.“

mbl.is