Vísa áhyggjum Loðnuvinnslunnar á bug

Fiskeldi Austfjarða bregst við yfirlýsingu Loðnuvinnslunnar.
Fiskeldi Austfjarða bregst við yfirlýsingu Loðnuvinnslunnar. mbl.is/Helgi Bjarnason

Sjókvía­eldi í Fá­skrúðsfirði mun ekki hafa nei­kvæð áhrif á gæði þess sjáv­ar sem Loðnu­vinnsl­an hf. mun nota. Þetta er álit vís­inda­manna í um­hverf­is­mál­um hjá rann­sókn­ar- og ráðgjaf­ar­stof­unni Ror­um.

Í til­kynn­ingu sem borist hef­ur frá Fisk­eldi Aust­fjarða kem­ur fram að í kjöl­far yf­ir­lýs­ing­ar Loðnu­vinnsl­unn­ar á þriðju­dag, þar sem lýst var áhyggj­um af áhrif­um líf­rænna efna frá fisk­eldi í firðinum á sjó­töku út­gerðar­inn­ar til vinnslu, hafi eld­is­fyr­ir­tækið ákveðið að óska eft­ir fræðilegu áliti sjálf­stæðra vís­inda­manna.

Styrkur næringarefna er sagður eðlilegur í kílómetra fjarlægð.
Styrk­ur nær­ing­ar­efna er sagður eðli­leg­ur í kíló­metra fjar­lægð. mbl.is/​Helgi Bjarna­son

Úrgang­ur­inn falli á botn­inn

Í áliti stof­unn­ar seg­ir að miskiln­ings virðist gæta um áhrifa­svæði sjókvía­eld­is og áhrif þess á fjarðar­um­verfi.

Fjöl­marg­ar kann­an­ir hafi verið gerðar í gegn­um tíðina, sem gefi afar skýra mynd af því hvernig ástand sjókvía­eldi skap­ar í fjörðum og hvaða áhrif eldið hef­ur á vist­kerfi fjarða og tær­leika vatns.

„Úrgang­ur­inn fell­ur að mestu á botn­inn inn­an við 50 metra frá kví­un­um og eyðist þar á hvíld­ar­tíma þegar eldis­töku lýk­ur. Í stuttu máli sagt þá eru all­ar kann­an­ir sam­hljóma og niðurstaðan er að lít­illa áhrifa gæt­ir í meira en 100 m fjar­lægð frá kvía­stæði og alls engra áhrifa gæt­ir þegar komið er í 350 m fjar­lægð,“ seg­ir í álit­inu.

Loðnuvinnslan hefur mótmælt áformum um fiskeldi í Fáskrúðsfirði.
Loðnu­vinnsl­an hef­ur mót­mælt áform­um um fisk­eldi í Fá­skrúðsfirði. mbl.is/​Helgi Bjarna­son

Útil­okað að Loðnu­vinnsl­an finni breyt­ingu

Greint er frá því að virt rann­sókn­ar­stofn­un í Nor­egi, IRIS, hafi ný­lega lokið við mjög ýt­ar­lega og ná­kvæma rann­sókn á þess­um þátt­um í Beruf­irði, í sam­starfi við Fisk­eldi Aust­fjarða og Ror­um.

Niður­stöður þeirr­ar rann­sókn­ar, og annarr­ar til viðbót­ar, séu al­gjör­lega ótví­ræðar. Vatns­inn­tak Loðnu­vinnsl­unn­ar sé 6,7 kíló­metr­um frá næstu kví­um í straum­stefnu, „þannig að al­ger­lega úti­lokað er að þeir muni nokk­urn tím­ann finna neina breyt­ingu á sín­um vatns­gæðum vegna sjókvía­eld­is í firðinum.“

Alls eng­ar breyt­ing­ar sé held­ur að finna í meira en 350 metra fjar­lægð frá kví­um.

Aukn­ing aðeins við sjókví­arn­ar

Einnig er tekið fram að Nátt­úru­stofa Aust­ur­lands hafi gert eft­ir­lits­mæl­ing­ar á nær­ing­ar­efn­um í sjó 21. sept­em­ber síðastliðinn, við svipaðar aðstæður í Beruf­irði og verði í Fá­skrúðsfirði.

„Þar kem­ur fram að á viðmiðun­ar­stöð í um eins kíló­metra fjar­lægð í straum­stefnu er styrk­ur nær­ing­ar­efna eðli­leg­ur og að aðeins við sjókví­arn­ar mæl­ist aukn­ing á styrk nær­ing­ar­efna.“

„Að fram­an­sögðu er ljóst að ekki er hætta á að sjókvía­eldi í Fá­skrúðsfirði hafi nei­kvæð áhrif á gæði þess sjáv­ar sem Loðnu­vinnsl­an hf. mun nota.“

mbl.is