Ögurvík hyggst endurnýja Vigra RE-71

Vigri RE-71 á leið til löndunar. Skipið er um þessar …
Vigri RE-71 á leið til löndunar. Skipið er um þessar mundir í slipp. mbl.is/Árni Sæberg

Útgerð Ögur­vík­ur hef­ur ákveðið að setja frysti­tog­ar­ann Vigra RE 71 á sölu. „Við héld­um fund með áhöfn­inni í sl. viku, skipið er í slipp núna. Við til­kynnt­um að við hefðum hug á að end­ur­nýja skipið, þ.e. setja Vigra á sölu og finna annað skip í staðinn.“

Þetta seg­ir seg­ir Ægir Páll Friðberts­son, fram­kvæmda­stjóri Ögur­vík­ur, út­gerðarfé­lags í eigu Brims, í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag.

„Það er nú þannig með sjó­manna­lög og sjó­manna­samn­inga að áhafn­ir eru ráðnar á skip. Það er ekki hægt að flytja áhafn­ir á milli skipa öðru­vísi en að segja upp ráðning­ar­samn­ing­um. Ögur­vík er ekki hætt út­gerð, Vigri verður gerður út þar til hann selst. Við reikn­um nú með að finna skip en við þurf­um að selja þetta fyrst,“ seg­ir Ægir Páll.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: