Leyfir fiskeldi í Patreks- og Tálknafirði

Fjarðalaxi verður heimilt að framleiða allt að 10.700 tonn á …
Fjarðalaxi verður heimilt að framleiða allt að 10.700 tonn á ári og Arctic Sea Farm 6.800 tonn. mbl.is/Helgi Bjarnason

Mat­væla­stofn­un hef­ur veitt Arctic Sea Farm og Fjarðalaxi rekstr­ar­leyfi til fisk­eld­is í Pat­reks- og Tálknafirði. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá stofn­un­inni en sam­an­lögð ár­leg fram­leiðsla fyr­ir­tækj­anna tveggja verður 17.500 tonn af laxi.

Fjarðalaxi verður með þessu heim­ilt að fram­leiða allt að 10.700 tonn á ári og Arctic Sea Farm 6.800 tonn.

„Há­marks­líf­massi eld­is­ins mun ekki fara yfir 20.000 tonn sem er í sam­ræmi við burðarþols­mat fjarðanna. Starf­sem­in er einnig háð starfs­leyfi Um­hverf­is­stofn­un­ar,“ seg­ir í til­kynn­ingu Mat­væla­stofn­un­ar.

Tekið er fram að fram­kvæmd fyr­ir­tækj­anna hafi farið í gegn­um sam­eig­in­legt mat á um­hverf­isáhrif­um í sam­ræmi við lög um mat á um­hverf­isáhrif­um.

Heim­ilt er að kæra ákvörðun Mat­væla­stofn­un­ar um út­gáfu fyrr­nefndra rekstr­ar­leyfa til úr­sk­urðar­nefnd­ar um­hverf­is- og auðlinda­mála og er kæru­frest­ur einn mánuður frá deg­in­um í dag.

mbl.is