Trump: Þurfum hlýnun jarðar

Donald Trump heimsótti slökkvistöð í Flórída.
Donald Trump heimsótti slökkvistöð í Flórída. AFP

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti, sem nú er í jóla­fríi á Flórída, gaf til kynna í færslu á Twitter í nótt að lofts­lags­breyt­ing­ar væru mýta og benti máli sínu til stuðnings á að kald­ara væri nú á aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna en nokkru sinni fyrr. Skrifaði Trump að kannski væri hægt að nota eitt­hvað af þess­ari hlýn­un jarðar til að hita svæðið. 

Staðreynd­irn­ar tala reynd­ar sínu máli þvert á það sem for­set­inn er að gefa í skyn. Hita­stig á jörðinni hef­ur aldrei mælst meira en í fyrra og vís­bend­ing­ar eru um að árið 2017 muni slá það met. Ger­ist það verður árið í ár það fjórða í röðinni til að vera heit­ara en árið á und­an.

Fjallað er um færslu Trumps í frétt á CNN og þar kem­ur fram að blaðamaður hafi spurt Hvíta húsið hvort tíst for­set­ans væri til marks um stefnu rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Ekki höfðu feng­ist svör við þeirri fyr­ir­spurn en í frétt CNN er tekið fram að svör­in hafi hingað til verið á þá leið að líta beri á tíst Trumps sem op­in­bera stefnu yf­ir­valda. 
Trump hef­ur ít­rekað reynt að gera lítið úr lofts­lags­breyt­ing­um af manna­völd­um. „Það er ískalt og það snjó­ar í New York. Við þurf­um hlýn­un jarðar,“ skrifaði hann m.a. á Twitter árið 2012. Ári síðar skrifaði hann að mjög kalt væri í Los Ang­eles og að loft­lags­breyt­ing­ar væru dýrt bull.
Sér­fræðing­ar sem CNN hef­ur rætt við um málið segja að svo virðist sem for­set­inn átti sig ekki á mun­in­um á veðri frá degi til dags og svo lofts­lagi eða veðurfari. 
mbl.is

Bloggað um frétt­ina