Innanríkisráðherra Írans hefur biðlað til írönsku þjóðarinnar um að forðast „ólöglegar samkomur“ eftir tvo daga af mótmælum gegn klerkastjórninni og efnahagslegum vandamálum.
„Við hvetjum alla þá sem fá boð um að mótmlæa um að taka ekki þátt í þessum ólöglegu samkomum, það mun skapa vandamál fyrir þá sem taka þátt í þeim og aðra ríkisborgara,“ hefur ISNA-fréttaveitan eftir Abdorlahman Rahmani Fazli.
Upprunaleg ástæða mótmælanna er almennar verðhækkanir. Stjórn forsetans, Hassans Rouhanis, hefur til að mynda tvöfaldað verð á eggjum. Nú hafa mótmælin stigmagnast í fjöldamótmæli gegn klerkastjórninni og stefnu stjórnvalda.