Tíu manns hafa látið lífið í fjölmennum mótmælum víðs vegar í Íran, samkvæmt upplýsingum frá ríkissjónvarpi Írans. BBC greinir frá.
Mótmælin hafa staðið yfir í fimm daga og hófust í borginni Mashhad, þeirri næststærstu í landinu. Fólk fjölmennti á götur miðborgarinnar til að sýna reiði sína yfir háu verðlagi í landinu og var mótmælunum beint að forseta landsins, Hassan Rouhani.
Mótmælin standa yfir í nokkrum borgum og voru tveir mótmælendur skotnir til bana í nótt í mótmælum í bænum Izes í suðvesturhluta Íran.
„Íbúar í Izeh, líkt og öðrum borgum, eru að mótmæla bágu efnahagsástandi og því miður hefur það leitt til tveggja dauðsfalla,“ hefur ILNA fréttastofan í Íran eftir þingmanni í bænum.
Þetta er mesta andstaða sem írönsk stjórnvöld hafa staðið frammi fyrir frá árinu 2009 þegar mótmælendur komu saman til að krefjast umbóta í landinu.
Frétt mbl.is: Mótmælendur muni mæta „járnhnefa“
Alls búa um 200 þúsund manns í Izeh. Mótmælendur hafa meðal annars brotið rúður í bönkum og vill þingmaðurinn meina að þá hafi lögreglan gripið til aðgerða, með þeim afleiðingum að tveir mótmælendur létust. Að sögn ríkisstjórans á svæðinu er þó talið ólíklegt að lögreglan hafi hafið skothríð á mótmælendur, þar sem hún hafi fengið fyrirmæli þess efnis að gera það ekki.