Veiðigjöldin verða lækkuð

Rík­is­stjórn Katrín­ar Jak­obs­dótt­ur ætl­ar að taka veiðigjöld í sjáv­ar­út­vegi til end­ur­skoðunar á ár­inu með það að mark­miði að lækka gjöld­in á lít­il og meðal­stór sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki og af­komu­tengja þau.

„Við erum að horfa til litlu og meðal­stóru fyr­ir­tækj­anna sem eru ekki að ráða við þá miklu hækk­un sem varð á veiðigjald­inu 1. sept­em­ber á síðasta ári,“ seg­ir Lilja Raf­ney Magnús­dótt­ir, formaður at­vinnu­vega­nefnd­ar, í um­fjöll­un um veiðigjöld­in og áformaða lækk­un þeirra  í Morg­un­blaðinu í dag.

„Sú hækk­un var mjög mik­il, al­veg frá 200 pró­sent­um og yfir 300 pró­senta hækk­un hjá sum­um. Það er far­in af stað vinna í ráðuneyt­inu við að skoða þetta. Sú vinna á að ganga hratt fyr­ir sig.“

Nú­ver­andi lög sem veiðigjöld­in byggj­ast á í dag renna út í lok þessa fisk­veiðiárs og var kveðið á um breyt­ing­ar á veiðigjöld­un­um í stjórn­arsátt­mála Sjálf­stæðis­flokks, Vinstri-grænna og Fram­sókn­ar­flokks­ins þannig að gjöld­in yrðu af­komu­tengd. Lilja Raf­ney seg­ir þess­ar breyt­ing­ar vel rúm­ast inn­an þess orðalags sátt­mál­ans.

„Við leggj­um mikla áherslu á að þessi vinna gangi hratt fyr­ir sig og við get­um skilað ein­hverju frá okk­ur fyr­ir vorið í þess­um efn­um. At­vinnu­vega­nefnd mun ræða þessi mál þegar þing kem­ur aft­ur sam­an. Þingið á líka eft­ir að skipa póli­tískt í veiðigjalda­nefnd og það verður þá sett í gang,“ seg­ir Lilja Raf­ney.

Kristján Þór Júlí­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráðherra staðfest­ir það í sam­tali við Morg­un­blaðið að breyt­inga sé að vænta.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: