„Óforsvaranlegt með öllu“

Eldisk­ví­ar Akvafut­ure við Sæterosen í Vel­fjord.
Eldisk­ví­ar Akvafut­ure við Sæterosen í Vel­fjord.

Lands­sam­band veiðifé­laga ger­ir al­var­leg­ar at­huga­semd­ir við áform Akvafut­ure um 20.000 tonna fisk­eldi í Eyjaf­irði. Tel­ur sam­bandið ótíma­bært með öllu að ráðast í um­rædda fram­kvæmd.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá sam­band­inu en greint var frá áformun­um hér á 200 míl­um í des­em­ber.

Full­yrt er í til­kynn­ing­unni að ljóst sé af matsáætl­un að eldisk­ví­ar fyr­ir­tæk­is­ins hafi verið notaðar í skamm­an tíma í Nor­egi. Lít­il reynsla sé kom­in á hversu fisk­held­ar þær eru.

„Sá búnaður sem stend­ur til að nota hef­ur ekki verið prófaður við ís­lensk­ar aðstæður. Til­greind­ur búnaður er aðeins gef­inn upp fyr­ir öldu­hæð að tveim­ur metr­um og tel­ur Lands­sam­bandið að slík­an búnað verði að meta mjög ótraust­an við ís­lensk­ar aðstæður,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Eng­in reynsla á notk­un kerf­is­ins

„Það er ófor­svar­an­legt með öllu að ráðast í stór­fellt sjó­eldi á allt að 10 millj­ón­um laxa í svo veik­b­urða búnaði, sem eng­in reynsla er kom­in á við ís­lensk­ar aðstæður, í námunda við helstu laxveiðiár á Norður- og Aust­ur­landi. Lands­sam­bandið tel­ur að í ljósi þess að eng­in reynsla er á notk­un þessa kerf­is í sjókvía­eldi við Ísland verði að meta hættu á slysaslepp­ing­um frá eld­inu með sama hætti og um hefðbundn­ar sjókví­ar sé að ræða.“

Tekið er þá fram að sam­bandið legg­ist ein­dregið gegn fyr­ir­hugaðri fram­kvæmd.

„Lands­sam­band veiðifé­laga set­ur fram ófrá­víkj­an­lega kröfu um að sá búnaður sem fyr­ir­tækið hyggst nota til eld­is­ins verði þaul­prófaður við ís­lensk­ar aðstæður og vottaður traust­ur af inn­lend­um aðilum. Niður­stöður þeirra rann­sókna verði síðan for­send­ur ákvörðunar um hvort taka megi búnaðinn til stór­felldr­ar fram­leiðslu á frjó­um laxi í sjó við Ísland.“

mbl.is

Bloggað um frétt­ina