Töluverð röskun hjá Strætó

Sökum veðurs liggja ferðir leiðar 55 hjá Strætó á milli Reykjavíkur og Reykjaness niðri. Nánari upplýsingar um næstu ferðir verða gefnar klukkan 7:45.

Sökum veðurs eru heldur engar strætóferðir á milli Borgarness - Akraness - Mjódd í augnablikinu, að sögn Guðmundar Heiðars Helgasonar, markaðs- og upplýsingafulltrúa Strætó. 

Leið 51, sem venjulega fer á milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði, ekur aðeins á milli Selfoss og Hveragerðis. 

Vegna veðurs falla niður eftirfarandi ferðir leiðar 51:
Frá Mjódd kl.07:10 að Hveragerði.
Frá Mjódd kl.08:00 að Hveragerði. 

Ferðin frá N1 Selfoss kl.07:20 ekur aðeins að Hveragerði. Áætlun frá Hveragerði kl. 07:47 ekur að N1 Selfossi. 

mbl.is