Segir þekkingu skorta í gagnrýni LV

Eldisk­ví­ar Akvafut­ure við Sæterosen í Vel­fjord.
Eldisk­ví­ar Akvafut­ure við Sæterosen í Vel­fjord.

Gagn­rýni Lands­sam­bands veiðifé­laga á fyr­ir­hugað lax­eldi í lokuðum kví­um í Eyjaf­irði ber vott um þekk­ing­ar­skort, seg­ir Rögn­vald­ur Guðmunds­son, fram­kvæmda­stjóri AkvaFut­ure ehf. sem hef­ur uppi áform um 20 þúsund tonna eldi í firðinum.

„Það er þekk­ing­ar­skort­ur og ákveðnar vill­ur sem koma þarna fram,“ seg­ir Rögn­vald­ur í sam­tali við 200 míl­ur, en greint var frá gagn­rýni LV á þriðju­dag.

Bæði með belti og axla­bönd

„Þeir segja til dæm­is að búnaður­inn hafi ekki verið prófaður sem er ekki rétt, hann er bú­inn að vera í vinnslu og þróun í tíu ár og á því tíma­bili hef­ur til­rauna­eldi staðið yfir í sex ár,“ seg­ir Rögn­vald­ur og bend­ir á að búnaður­inn sé á tveim­ur stöðum í Nor­egi og þar sé haf­in fram­leiðsla að fullu.

„Ef við skoðum vel­ferð fiska og mögu­leik­ann á slysaslepp­ing­um þá kem­ur búnaður­inn mjög vel út. Þessi lokaði poki sem við not­um er mjög traust­ur,“ seg­ir Rögn­vald­ur. Tek­ur hann dæmi:

„Þegar ég hef kynnt búnaðinn á Íslandi þá hef ég jafn­an haft með mér smá pjötlu úr þessu efni og beðið menn að rífa hana. Það hef­ur eng­um tek­ist, jafn­vel þó að búið sé að gera smá sár til að auðvelda mönn­um verkið.

Það er því ekki nema eitt­hvað stór­kost­legt ger­ist sem þessi poki rifn­ar. Og þá að auki erum við með venju­lega fisk­eld­isnót þar fyr­ir utan. Þó ekki vegna þess að við treyst­um ekki pok­an­um, eins og Lands­sam­band veiðifé­laga hef­ur áður full­yrt, held­ur kalla ég þetta að hafa bæði belti og axla­bönd.“

Rögnvaldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri AkvaFuture.
Rögn­vald­ur Guðmunds­son, fram­kvæmda­stjóri AkvaFut­ure.

Úthafs­alda hverf­andi í inn­an­verðum Eyjaf­irði

Eitt af því sem LV nefndi í gagn­rýni sinni var að búnaður AkvaFut­ure væri aðeins gerður fyr­ir öldu­hæð að tveim­ur metr­um. „[...] og tel­ur Lands­sam­bandið að slík­an búnað verði að meta mjög ótraust­an við ís­lensk­ar aðstæður.“

Rögn­vald­ur bend­ir hins veg­ar á að Vega­gerðin hafi ný­verið rann­sakað öldufar í Eyjaf­irði vegna fyr­ir­hugaðs fisk­eld­is.

„Öllum sem ætla að ráðast í fisk­eldi er uppálagt að láta gera slíka rann­sókn,“ seg­ir hann. „Í niður­stöðum henn­ar kem­ur fram að út­hafs­alda er hverf­andi á þeim svæðum sem við erum að skoða, það er inn­an við Hjalteyri.“

Sam­kvæmt niður­stöðunum megi eiga von á því einu sinni á hverj­um fimm­tíu árum að haf­alda nái 1-1,8 metra hæð á fyr­ir­huguðu eld­is­svæði. Á sama tíma­bili er bú­ist við að vin­döldu­hæð geti í eitt sinn náð 1,4-2 metra hæð.

„Við erum enda­laust að vinna að því að gera búnaðinn trygg­ari í meiri öldu­hæð og það virðist vera til­tölu­lega auðvelt að leggja út öldu­deyfa í meg­in­vindátt­inni,“ seg­ir Rögn­vald­ur og bend­ir á að þegar fel­ist ákveðin öldu­deyf­ing í sjálf­um búnaðinum.

„Hver flot­bryggja sem um­lyk­ur hverja ein­ustu nót sam­an­stend­ur af átta steypuklump­um, sem vega 33 tonn hver. Það deyf­ir öld­una heil­mikið.“

Hrísey í Eyjafirði. Ráðgert er að fiskeldið verði innar í …
Hrís­ey í Eyjaf­irði. Ráðgert er að fisk­eldið verði inn­ar í firðinum en Hjalteyri. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Væn­legt villt­um laxi

Rögn­vald­ur nefn­ir þá að sér finn­ist ein­kenni­legt hversu litla áherslu Lands­sam­band veiðifé­laga leggi á það vanda­mál sem laxal­ús fel­ur í sér, en laxal­ús er helsta vanda­mál lax­eld­is í Nor­egi og verða mik­il af­föll í eld­inu þar sem allt að fimmti hver fisk­ur drepst.

Þótt hér sé kald­ur sjór og minna hafi verið um lúsa­vanda­mál til þessa hafa komið upp ein­stök dæmi um erfiðleika vegna lús­ar, svo nauðsyn­legt hef­ur verið að meðhöndla fisk­inn.

Aðra sögu sé að segja um kerfi AkvaFut­ure. Þar þrífst eng­in laxal­ús að sögn Rögn­vald­ar, og því get­ur hún ekki breiðst úr kví­un­um til villtra laxa­stofna.

„Hún kemst ekki í gegn­um pok­ann og svo dæl­um við í hann sjó af 20 til 25 metra dýpi, en lús­in held­ur sig mun ofar.“

Rögn­vald­ur seg­ir að þessi sérstaða hafi aflað AkvaFut­ure stuðnings hjá Nor­ske Lak­seel­ver – sam­tök­um veiðirétt­ar­hafa í Nor­egi, sem þannig sé hliðstætt Lands­sam­bandi veiðifé­laga.

„Þau hafa tjáð sig um þetta kerfi okk­ar og kalla það „villaks-venn­lig“ – væn­legt villt­um laxi.“

Andstaða LV skjóti þannig skökku við.

mbl.is