Fyrsti opni íbúa- og kynningarfundur um borgarlínu, nýtt kerfi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu, fer fram í dag í Hafnarborg í Hafnarfirði.
Hrafnkell Á. Proppé, svæðisskipulagsstjóri, heldur erindi ásamt Ólöfu Kristjánsdóttur verkfræðingi og fagstjóra samgöngu hjá verkfræðistofunni Mannvit. Þau munu kynna hið nýja kerfi almenningssamgangna sem sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu undirbúa ásamt skýrslu Mannvits um úttekt á göturými.
Kostnaður vegna undirbúnings borgarlínunnar nemur 83 milljónum króna fram til þessa. Ríkið greiðir stærsta hlutann eða 55 milljónir. Þetta kom fram í svari borgarstjóra við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í lok síðasta árs.
Fjölmennt er á fundinum og er salurinn í Hafnarborg þétt setinn. Sýnt er beint frá fundinum á Facebook-síðu Hafnarfjarðar og og á vef bæjarins. Gera má ráð fyrir að fundurinn standi yfir í um eina og hálfa klukkustund.
Hér má fylgjast með fundinum: