Plastmengun er önnur stærsta ógnin sem kóralrif standa frammi fyrir að mati vísindamanna. Stærsta ógnin telst vera hlýnun sjávar. Plasthlutir fundust á þriðjungi kóralrifa í Asíuhluta Kyrrahafsins í nýlegri rannsókn sem BBC greinir frá, en alls fundust um 11 milljarðar plasthluta á rifunum.
Er magnið talið eiga eftir að aukast enn frekar og spá vísindamenn því að um 15 milljarðar plasthluta muni finnast á þessum sömu stöðum árið 2025.
Plastefni auka, samkvæmt rannsóknum, 20 falt hættuna á að sjúkdómar komi upp hjá kóralinum. Plastpokar, flöskur og hrísgrjónapokar voru meðal þeirra plasthluta sem fundust.
„Það er hryggilegt að sjá hversu margir plasthlutir finnast í kóralrifunum ...ef við getum farið að beina sjónum okkar að þeim sem menga mest, þá getum við vonandi dregið úr magninu sem endar á kóralrifunum,“ hefur BBC eftir dr. Joleah Lamb við Cornell háskóla í Ithaca í Bandaríkjunum. Plastið er ein stærsta ógn hafanna í augnablikinu,“ bætti hann við.
Rúmlega 275 milljónir manna reiða sig á kóralrifin m.a. fyrir fæðu, vernd strandlengjunnar og tekjur af ferðamönnum. Þá eru kóralarnir mikilvæg búsetusvæði fyrir ýmsar fisktegundir.
Talið er að plastefnin geri sjúkdómum sem herja á lindýr í hafinu kleift að þrífast vel.
„Við rekumst oft á stóra hrísgrjónasekki eða stóra plastpoka,“ sagði Lamb, en oft flækist plastrusl í greinar kóralanna. „Við sjáum að þeir kóralar sem eru með mikinn greinavöxt eru átta sinnum líklegri til að fá slíkt plast flækt í sig.“
Greinin er birt í vísindatímaritinu Science og byggir á rannsóknum á 150 kóralrifum í nágrenni fjögurra landa á Asíuhluta Kyrrahafsins, en rannsóknin var framkvæmd á árunum 2011-2014.
Plastefni fundust á þriðjungi kóralrifanna sem voru skoðuð. Verst var ástandið á kóralrifum í nágrenni Indónesíu, en minnst var um plastefni á kóralrifum í nágrenni Ástralíu. Ástandið á kóralrifum Taílands og Búrma var þar mitt á milli.