Sævar Þór Jónsson, lögmaður og réttargæslumaður drengs sem lagði fram kæru á hendur starfsmanni Barnaverndar Reykjavíkur í ágúst á síðasta ári fyrir gróf kynferðisbrot sem hann á að hafa framið gegn honum á árunum 2004 til 2010, mótmælir þeim fullyrðingum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, að lögregla hafi ekki upplýsingar um ítrekanir frá honum vegna kærunnar.
Hann segir að fulltrúi sinn hafi að minnsta kosti þrisvar haft samband við lögreglu vegna málsins og ýtt á eftir því, enda hafi komið fram í gögnum að brotin væru alvarleg og að maðurinn starfaði með börnum. Blaðmaður hefur undir höndum tölvupósta því til staðfestingar að málið hafi verið ítrekað af hálfu fulltrúa lögmannsins og óskað eftir upplýsingum um stöðu þess. Tölvupóstarnir voru sendir á ákveðinn lögreglumann innan kynferðisbrotadeildarinnar sem Sævar hafði fengið upplýsingar um að færi með málið. Þeim var hins vegar aldrei svarað.
Sævar sagði í samtali við mbl.is í morgun að ekkert hefði verið aðhafst í á máli drengsins fyrr en hann hefði margítrekað kæruna við lögreglu. Kæran var lögð fram í ágúst síðastliðnum en drengurinn var ekki kallaður í skýrslutöku fyrr en í desember. Fimm mánuðir liðu því frá því kæran var lögð fram og málið var tekið til skoðunar. Á meðan starfaði maðurinn á skammtímaheimili fyrir unglinga í Breiðholti, sem rekið er af Barnavernd Reykjavíkur, líkt og hann hefur gert síðastliðinn ár.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri í Reykjavík, sagði í samtali við mbl.is fyrr í dag að hún kannaðist ekki við að ítrekanir hefðu borist vegna kærunnar. „Við erum ekki með upplýsingar um ítrekanirnar, en erum að fara yfir málið núna,“ sagði hún. Þá sagði Árni Þór Sigmundsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, einnig að hann hefði ekki vitneskju um að málið hefði verið ítrekað.
„Þannig er að fulltrúi minn, Lárus Sigurður Lárusson lögmaður, hringir í lögregluna á tímabilinu október, nóvember til að ítreka málið. Þá var ekki búið að úthluta málinu. Fyrir framan mig núna er ég með tvo tölvupósta, annar er dagsettur 1. desember 2017. Þá var lögreglumanni sendur tölvupóstur þar sem hann er spurður um gang málsins. Þeim tölvupósti er ekki svarað. Síðan er sendur annar tölvupóstur þann 5. desember til sama manns, vegna þess að við sendum viðbótargögn í málinu. Þar er hann spurður hvort hann hafi fengið viðbótargögnin. Þeim pósti var heldur ekki svarað,“ segir Sævar sem er verulega ósáttur við að lögregla segist ekki kannast við ítrekanir hans. Hann segir það ótrúverðugan framburð.
Maðurinn var stuðningsfulltrúi drengsins sem og dvaldi drengurinn mjög reglulega á heimili hans. Fór það eftir þörfum hve oft hann fór til hans, bæði um helgar og á virkum dögum. Systkini drengsins dvöldu líka hjá manninum á einhverjum tímapunkti og leikur grunur á því að maðurinn hafi jafnframt brotið gegn þeim.
Sævar sagði í samtali við mbl.is í morgun málið hafa komist upp þegar drengurinn brotnaði niður fyrir nokkru síðan. „Í kjölfarið fer hann í langt og strangt meðferðarferli hjá fagaðilum til að fá aðstoð og byggja sig upp. Hann var algjörlega niðurbrotin. Það tók hann langan tíma að byggja upp kjark til að gera eitthvað í málinu,“ sagði Sævar, en drengurinn setti sig í samband við hann í kjölfarið, sumarið 2017.
Þá liggur nú fyrir að maðurinn var einnig kærður fyrir kynferðisbrot gagnvart barni árið 2013 vegna brota sem áttu að hafa verið framin á árunum 2000 til 2006. Það mál var hins vegar talið fyrnt og því látið niður falla. Mbl.is hefur einnig heimildir fyrir því að maðurinn hafi verið tilkynntur til Barnaverndar Reykjavíkur og Félagsþjónustunnar vegna gruns um að hann hefði brotið kynferðislega gegn börnum. Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, segist hins vegar ekki kannast við við að slík tilkynning hafi borist.