Afurðir fiskeldis aukast um 38%

Útlit er fyrir að aukning verði í laxeldi á þessu …
Útlit er fyrir að aukning verði í laxeldi á þessu ári. mbl.is/Helgi Bjarnason

Fram­leiðsla í fisk­eldi jókst um 38% á nýliðnu ári, miðað við árið á und­an, og nam 20.776 tonn­um. Mest juk­ust afurðir úr sjókvía­eldi á laxi en hlut­falls­lega mest jókst regn­bogasil­ung­ur úr sjókví­um. 86% af öll­um laxi sem fram­leidd­ur var hér á landi á síðasta ári kom upp úr kví­un­um hjá einu fyr­ir­tæki.

Fram­leidd voru 11.265 tonn af laxi á síðasta ári, þriðjungi meira en árið áður, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Mat­væla­stofn­un. Meg­in­hluti fram­leiðslunn­ar er úr sjókvía­eldi, þar af nærri 10 þúsund tonn frá Arn­ar­laxi. Fjög­ur fyr­ir­tæki fram­leiddu lax, tvö í sjó og tvö á landi. Íslands­bleikja fram­leiddi nærri 1.200 tonn í land­eld­is­stöð.

Útlit er fyr­ir að aukn­ing verði í lax­eldi á þessu ári með því að ný fyr­ir­tæki koma inn í fram­leiðsluna auk viðbót­ar hjá þeim sem fyr­ir eru. Þannig hef­ur Fisk­eldi Aust­fjarða hafið slátrun og Lax­ar fisk­eldi hefja slátrun und­ir lok þessa árs eða í byrj­un þess næsta.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: