Rannsókn stendur yfir hjá lögreglu á kynferðisbrotum fyrrverandi starfsmanns barnaverndaryfirvalda gegn sjö manns. Frá þessu greindi Karl Steinar Valsson lögreglumaður í Kastljósi í kvöld.
Sævar Þór Jónsson, réttargæslumaður drengs sem kærði manninn fyrir gróf kynferðisbrot í ágúst í fyrra, sagði í fyrradag að hann vissi um tíu einstaklinga sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi af hendi karlmannsins, sem hefur unnið sem stuðningsfulltrúi barna á vegum Barnaverndar Reykjavíkur.
Frétt mbl.is: Segist vita um tíu brotaþola
Karl Steinar er fastafulltrúi Íslands hjá Europol í Haag en er nú staddur hér á landi til að stýra innri athugun á því hvað fór miður þegar maðurinn var ekki tilkynntur til barnaverndaryfirvalda fyrr en rúmum fimm mánuðum eftir að kæra á hendum honum var lögð fram.