Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir starfsmanni Barnaverndar Reykjavíkur sem grunaður er um ítrekuð kynferðisbrot gagnvart börnum. Þetta staðfestir Kristján Ingi Kristjánsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
Ekki fengust upplýsingar um það hjá lögreglu hvað verður farið fram á langt varðhald, en maðurinn verður færður fyrir dómara í dag þar sem sú ákvörðun verður tekin. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því 19. janúar síðastliðinn.
Kæra var lögð fram á hendur manninum í ágúst á síðasta ári vegna kynferðisbrota sem hann á að hafa framið framið gegn dreng þegar hann var á aldrinum 8 til 14 ára. Maðurinn var stuðningsfulltrúi drengsins þegar meint brot voru framinn. Málið var hins vegar ekki tekið til skoðunar hjá lögreglu fyrr en í desember, þá eftir ítrekaðar fyrirspurnir réttargæslumanns drengsins. Í janúar var maðurinn svo handtekinn og hann úrskurðaður í gæsluvarðhald. Samtals hafa nú borist átta kærur á hendur manninum fyrir kynferðisbrot gagnvart börnum.
Vegna þeirra miklu tafa sem urðu á málinu í meðförum lögreglunnar var hafin rannsókn, undir forystu Karls Steinars Valssonar yfirlögregluþjóns, innri skoðun á ferli og rannsókn málsins. Var niðurstaðan kynnt á blaðamannafundi í vikunni og skýrslan jafnframt birt.
Í skýrslunni er verklag lögreglunnar gagnrýnt, meðal annars að við frumgreiningu hafi ekki verið athugað strax með starfsvettvang mannsins í ljósi þeirra ásakana sem komi fram í kærunni. Er aðkoma stjórnenda sögð hafa verið ómarkviss, verkskipting óljós og aðhald um framvindu málsins ekki viðunandi.