MAST telur litlar líkur á að fiskur hafi sloppið

Mikill uppgangur hefur verið í sjókvíaeldi á Vestfjörðum.
Mikill uppgangur hefur verið í sjókvíaeldi á Vestfjörðum. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Mat­væla­stofn­un tel­ur, á grund­velli ljós­mynda og annarra þeirra gagna sem henni hafa borist, meðal ann­ars lýs­ing­um kafara, að litl­ar lík­ur séu á því að fisk­ur hafi sloppið úr sjókví­um fyr­ir­tæk­is­ins í síðustu viku í kjöl­far þess að tjón varð á tveim­ur kví­um fyr­ir­tæk­is­ins.

Önnur kví­in er í Arnar­f­irði en hin í Tálknafirði.

Þá tel­ur stofn­un­in að fyr­ir­tækið hafi brugðist rétt við til að fyr­ir­byggja frek­ara tjón. Seg­ir í til­kynn­ingu frá MAST að farið verði í eft­ir­lits­ferð hjá Arn­ar­laxi við fyrsta tæki­færi og að frek­ari út­tekt verði þá gerð á sjókví­um fyr­ir­tæk­is­ins og fyrr­nefnd­um viðbrögðum þess.

Fiski­stofu var einnig til­kynnt um tjón fyr­ir­tæk­is­ins og gögn máls­ins hafa verið send þangað. Fiski­stofa fer með mál er varða slysaslepp­ing­ar.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: